Upplýsingar
Byggt 1982
282 m²
8 herb.
2 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 26. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Álfatún 4, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega vandað einbýlishús með bílskúr á fallegum útsýnisstað við Álfatún, neðst í Fossvogsdalnum. Húsið er á tveimur hæðum og með frístandandi bílskúr. Falleg gróin og skjólgóð lóð með harðviðar verönd og heitum potti. Tvö bílastæði eru innan lóðar. Húsið er teiknað af Guðna Pálssyni arkitekt.Í húsinu eru allt að sex svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær stofur, opið og rúmgott eldhús með HTH innréttingum, geymsla, þvottaherbergi, fataherbergi og arinn. Gengið er inn á efri hæðina, sem er með einstaklega fallegt útsýni til norðurs.
Smelltu hér til að sjá myndband af húsinu
Nánari lýsing:
Efri hæðin var endurnýjuð fyrir nokkrum árum og þar var lagt vandað eikarparket á gólfin og loftin klædd með hljóðdúk. Bjart og rúmgott eldhús var endurnýjað með vandaðri HTH eldhúsinnréttingu og vönduðum tækjum. Forstofan er flísalögð. Þar við hliðina er rúmgott parketlagt herbergi með gluggum í tvær áttir sem nú er nýtt sem skrifstofa en gæti hæglega verið svefnherbergi. Inn af forstofu liggur parketlagður gangur með fataskápum. Gestasnyrting er á hæðinni með flísum á gólfi og vandaðri ítalskri innréttingu. Stofan er rúmgóð með fallegum arni og glæsilegu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Frá stofu er gengið út í garð til suðurs og einnig niður á neðri hæð eignarinnar. Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi og opið sjónvarpsrými, en mögulegt væri að nýta rýmið sem fimmta svefnherbergið. Herbergin eru öll parketlögð og með miklu útsýni. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og útgengt er til norðurs frá tveimur svefnherbergjanna. Á hæðinni er einnig rúmgott og flísalagt baðherbergi með sturtu og baðkari og einnig geymsla og þvottaherbergi.
Einstaklega vel hannað hús með miklu útsýni. Einn eigandi frá upphafi.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook