Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja neðri hæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi á vinsælum stað við Birkiteig 3 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 80,5 m2 og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvotthús og fallegan sérgarð með sólpalli. Bílastæði við útidyr fylgir eigninni og möguleiki á að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl. Góð eign á frábærum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, vinsælar gönguleiðir og alla helstu þjónustu í miðbæ Mosfellsbæjar.
Endurbætur samkvæmt seljanda: Árið 2024 var gert við þakkant. Árið 2023 var skipt um gólfefni á öllu nema baði og forstofu. Ný innrétting, tæki og lýsing á baði. Nýr bakaraofn í eldhúsi. Árið 2019 var rafmagn yfirfarið í íbúð. Gengið frá lóðarmörkum í garð og sett upp hleðsla og skjólgirðing. Ný útiljós. Árið 2017 var byggt hjólaskýli/geymsla í garði.
** Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax **
Nánari lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, með parketi á gólfi og fallegu útsýni. Útgengt er út á sólpall úr stofu. Úr stofu og eldhúsi er fallegt útsýni að Esjunni.
Eldhús er bjart með L-laga brúnni eikarinnréttingu með bakaraofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Flísar eru milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, góðri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborði, skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjólaskýli/geymsla er í garði.
Bílastæði við útidyr fylgir eigninni og möguleiki er á að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl
Verð. kr. 72.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.