Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Snægil 13 íbúð 201

603 Akureyri

73.500.000 kr.

560.641 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2236025

Fasteignamat

60.973.000 kr.

Brunabótamat

66.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1998
svg
131,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 12. maí 2025 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600  

Snægil 13 íbúð 201 - 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi auk 29,0 m² bílskúrs. Heildarstærð eignar er 131,1 m²


Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Úr stofu er gengið út á steyptar svalir.
Forstofa er með flísum á gólfi og tvöfaldur skápur og skúffueining.
Eldhús spónlögð mahony innrétting með flísum á milli skápa og dökkt parket á gólfi. Ísskápur er innfelldur og fylgir með við sölu eignar. Uppþvottavél fylgir með við sölu.
Stofa er björt og með dökku parketi á gólfi. Gengið er úr stofu til vesturs út á steyptar svalir. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með dökku parketi á gólfi og föstum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi.
Þvottahús er inn af forstofu. Þar er dúkur á gólfi og bekkur með vask. Inn af þvottahúsi er geymsla.
Geymsla er með ljósum dúk á gólfi. Gluggi er á geymslu og gæti hún því vel nýst sem fjórða svefnherbergið.

Bílskúr er skráður 29,0 m² að stærð og vestastur af þeim þremur sem eru. Gólf er lakkað og innkeyrsluhurðin er með rafdrifnum opnara. Ljós innrétting með skolvaska og geymsluloft er yfir um helming. 

Annað
- Sameignlegt geymsluloft er yfir íbúðum á efri hæð. 
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir framan húsið.
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. mar. 2016
22.800.000 kr.
32.500.000 kr.
127.1 m²
255.704 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone