












Lýsing
Miklaborg kynnir: Fjögurra herbergja íbúð á annari hæð við Laufengi 15, Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofur, borðstofu, hjónaherbergi, tvö barna herbergi, hol, baðherbergi, geymslu á jarðhæð og sér hálf lokuðu bílastæði. Eignin getur verið afhend við kaupsamning. gæludýr eru leyfð í blokkinni.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flisum á gólfi og fataskáp. Eldhús með flísum á gólfi, ljósri innréttingu, plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp, ofni, helluborði og viftu. Stofa með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og útgengi út á svalir. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Tvö barnaherbergi bæði með parketi á gólfi, annað með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með vask og speglaskáp, salerni, handklæðaofni, sturtu og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er á jarðhæð sem og sameiginleg hjóla og vagna geymsla. Sér bílastæði er undir húsi.
Nánari upplýsignar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is