Upplýsingar
Byggt 1999
174,5 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 13. maí 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Kjóahraun 1, 220 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 13. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsilegt, vandað og velskipulagt 5-6 herbergja tvílyft einbýli á þessum eftirsótta stað í hrauninu miðsvæðis í Hafnarfirði, í göngufæri við miðbæinn, Hellisgerði ofl.
Húsið stendur á afar fallegum og friðsælum stað í hverfinu (Einarsreitnum) Lokaður botnlangi, hornlóð/jaðarlóð, frábært útsýni og mikið privat staðsetning. Hraunlóðin/garðurinn er glæsilegur með pöllum og fallegum blóma og trjágróðri. Sjón er sögu ríkari !
Neðri hæð: Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur og skóskúffa felld undir stiga upp á efrihæð. Glæsilegt baðherbergi með flottri sturtuaðstöðu, Eldhús er glæsilegt, bjart og rúmgott og með aukinni lofthæð, það var allt endurnýjað 2018 Flísar á gólfi, sérsmíðuð innrétting frá Þúsund fjölum ehf með stórri eyju, mikið skápapláss. Hiti í gólfi. Ljós marmara quartssteinn á eyju og eldhúsbekk. 90cm breið SMEG eldavél með gas helluborði. Tvöfaldur ísskápur með frystiskúffum og klakavél frá Liebherr. Ný kvörn undir eldhúsvaskinum. Mikil birta um stóra glugga, hurð út á pall. Mikið skápapláss er á neðri hæðinni. Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými sem flæðir saman við eldhús, 30mm þykk furugólfborð á gólfi. Sjónvarpsrými/herbergi innaf bílskúr (er hluti af bílskúr) parketlagt og með óbeinni lýsingu í lofti. Þvottaherbergi er rúmgott innaf gangi, hvít innrétting, útgengt í garðinn.
Efri hæð skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi með baðkari, hægt er á einfaldan hátt, að breyta einu hjónaherbergi í tvö þannig að verði 4 herbergi á efri hæð.(sjá teikningu) Kvistir í herbergjum. Allir innveggir eru léttir svo auðvelt er að breyta skipulagi. Gólf: 30mm þykk furugólfborð á gangi og herbergjum.
Öll rými hafa verið endurnýjuð á undanförnum árum. Eldhúsið var endurnýjað og sett upp sérsmíðuð innrétting og ný tæki 2018. Baðherbergið á neðri hæð er glæsilegt var endurnýjað 2019 með Vola sturtutækjum. Baðherbergið á efri hæð er glæsilegt og var endurnýjað 2024 með frístandandi baðkari. Gólfborð á neðri hæð slípuð og lökkuð 2022.
Stigi/stigahús á milli hæða er bjartur og staðsmíðaður í aldamótastíl, og stigaþrep eru teppalögð.
Garðurinn er perla sem skartar sínu fegursta á sumrin. Nýtt gróðurhús á palli, er framan við hurð úr eldhúsi. Stór hæðaskiptur pallur er við suð-vesturhlið og inn eftir norð-vesturhlið. Tröppur og malarstígur er frá garðinum niður á spark/róluvöll fyrir neðan húsið. Paradís fyrir fjölskyldu með börn. Framan við húsið er hellulagt plan með hita. Steinsteyptir blóma/tré potar eru á stéttinni. Þakskyggni nær yfir 1/3 af innkeyrslu framan við skúr sem tekur vætuna í rigningu eða snjókomu.
Bílskúr/geymsla, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð fyrir rafbíl.
Gerekti í kringum glugga og loftkverkum eru í aldamótastíl, einnig er nýtt rofa og tenglaefni í rafmagnsdósum með árið 1930 útliti/seria, frá Berker. Búið að setja Plejd í böðin og tvö herbergi. (ljósastýring) Útiljós eru á sólúri.
Uppsett jólaseria á tveimur stórum trjám í garði og skjólvegg fylgir með. Fallegir kvistir eru í herbergjum á efri hæðinni. Geymsluris (yfir gangi á efri hæðinni, niðurdreginn stigi)
Ath: Eignin er nokkuð breytt frá upphaflegum teikningu.
Þetta er mjög áhugaverð eign til að skoða frekar, á þessum einstaka stað í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar gefa Helgi Jón Harðarson sölustj. s.893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðardóttir lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 42 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.