












Lýsing
Miklaborg kynnir: Stílhrein og vel skipulögð íbúð í huggulegu þjónustusamfélagi eldri borgara í Hafnarfirði þar sem allt er innan seilingar, verslanir, heilbrigðisþjónusta og afþreying við allra hæfi. Íbúðin sjálf er skráð 69,3 fm en til viðbótar er 8,8 fm geymsla, samtals 78,1 fm.
Forstofan er rúmgóð með innbyggðum fataskápum. Baðherbergið er rúmgott og vel búið, með góðu skápaplássi, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta og opnanlegt fag. Svefnherbergið er notalegt og búið góðum fataskápum. Alrýmið, sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, er bjart og rúmgott. Útgengt er úr stofunni á skjólgóðar. Á gólfum íbúðarinnar er parket en flísar inn á baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara sameignar.
Sameign hússins er stór og vel útbúin, þar er meðal annars mötuneyti sem býður upp á heitan, heimilislegan hádegismat alla virka daga, hárgreiðslustofa og fjölbreytt tómstundastarf fyrir eldri borgara þar sem boðið er upp á allt frá handverki til léttari líkamsræktar
Hér er á ferð björt og falleg íbúð í notalegu og samfélagslega öflugu umhverfi sem hentar einstaklega vel fyrir eldri borgara. Stutt er í verslanir og alla helstu þjónustu og íbúðin er tilvalin fyrir þá sem vilja búa þægilega, örugglega og með góðum tengingum við lífið í kringum sig.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is