Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

1982

svg

1566  Skoðendur

svg

Skráð  19. maí. 2025

hæð

Bergstaðastræti 18

101 Reykjavík

229.000.000 kr.

1.392.097 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2327653

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1903
svg
164,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing


Trausti fasteignasala kynnir: Björt og einstaklega vönduð efri sérhæð og ris með sérinngangi í glæsilegu flutningshúsi/nýbyggingu við Bergstaðastrætið með víðáttumiklu útsýni.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 164,5 fm. 

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sérinngang að aftan við húsið.
Komið er inn á flísalagðan stigagang með sérsmíðuðum fallegum stiga með renndum eikarhandlista og eikarþrepum.
Farið upp á 2. hæð þar sem er opið eldhús og borðstofu með sérsmíðaðri vandaðri innréttingu frá Devol kitchens, hvítri Statua Rietto marmara-borðplötu, innbyggðum raftækjum frá Eirvík, frístandandi Smeg gaseldavél og eyju. Útgengt úr eldhúsi á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir. Úr eldhúsi og borðstofu er gengið inn í skrifstofu, tvö svefnherbergi og flísalagt baðherbergi með walkin sturtu
Gengið upp í ris í bjarta stofu með gluggum í allar áttir. Úr risi er gríðarlegt útsýni, en sjá má út á Reykjanes sem og Skarðsheiðina og Ljósufjöll. Einnig sést Esjan.
Úr stofunni er gengið inn í eitt svefnherbergi og stórt baðherbergi með innbyggðum skápum og pottbaðkari.
Útgengt á suðursvalir úr stofunni.
Mjög mikil lofthæð er í risinu en það er opið upp í mæni.
Myndir á vef eru dæmi um útlit eignar en gefur ekki endanlega mynd af eiginleikum og útliti.

Lúxusíbúð þar sem vandað hefur verið til allra verka: sérinnfluttir breskir pottofnar, á neðri hæðinni eru gegnheil afrísk hnotugólfborð en á efri hæð eru uppgerð furugólfborð. Flísar eru handgerðar portúgalskar flísar frá Flísabúðinni. Sérsmíðaðar fulningahurðir eru á allri íbúðinni sem og sérsmíðaðar svala- og útihurðir.

Fallegt hús á frábærum stað í gamla miðbænum. Stutt i alla þjónustu og leik-, grunn-, og menntaskólar í göngufæri. Sjón er sögu ríkari.

Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík