Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

194

svg

158  Skoðendur

svg

Skráð  21. maí. 2025

fjölbýlishús

Öldugata 51

101 Reykjavík

52.900.000 kr.

1.106.695 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001034

Fasteignamat

48.400.000 kr.

Brunabótamat

24.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
47,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 28. maí 2025 kl. 17:30 til 18:00

Sunna Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, verður á staðnum og sýnir eignina.

Lýsing

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í EINKASÖLU: Skemmtilega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í Öldugötu 51, 101 Reykjavík. Eignin er skráð 47,8 fm og telur eitt svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Sameiginleg þvottaaðstaða í sameign með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er í lokaðan bakgarð úr sameign. Flott eign á vinsælum stað sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.


Nánari lýsing á eigninni:
Forstofa/hol: Innangengt í önnur rými eignarinnar. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með skáp sem hefur verið pússaður og lakkaður svartur. Dúkur á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með ljósu parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt wc og handklæðaofn.
Eldhús: Ljós innrétting með viðarborðplötu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Þvotta- og þurrkherbergi: Er á jarðhæð í sameign með öðrum íbúðum hússins, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bakgaður: Sameiginlegur gróinn garður.

*Að sögn seljanda var húsið málað fyrir þremur árum. Gluggar eru ekki upprunalegir en ekki liggur fyrir hvenær þeir voru endurnýjaðir en það var a.m.k. fyrir tíma núverandi eiganda en sama á við um þak hússins.
*Það er kominn tími á endurnýjun lagna og rafmagnstöflu í húsinu.


Skemmtileg eign á vinsælum stað í vesturbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla og miðborg Reykjavíkur í göngufæri. Sjón er sögu ríkari.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. okt. 2015
17.600.000 kr.
20.000.000 kr.
47.8 m²
418.410 kr.
19. júl. 2006
9.575.000 kr.
14.900.000 kr.
47.8 m²
311.715 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone