Opið hús: Gerplustræti 6, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 09. Eignin verður sýnd mánudaginn 26. maí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá HMS alls 81 fm. Svalir eru skráðr 28,8 fm.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með góðum skáp. Flísar á gólfi.
Eldhús: Snyrtilegt með fallegri innréttingu frá HTH og góðu skápaplássi, gorenje helluborði, AEG bakaraofn í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa samliggjandi með eldhúsi þar sem er útgengt út á stórar svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott með ljósri innréttingu, sturtu og upphengdu salerni ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: Afar rúmgott með góðum skáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skáp. Parket á gólfi.
Geymsla: Er staðsett inn af forstofu með opnanlegum glugga svo auðvelt væri að nýta rýmið sem þriðja svefnherbergið. Flísar á gólfi.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla og merkt bílastæði í bílakjallara með tengi fyrir hleðslustöð. Stór og skjólgóður sameiginlegur garður.
Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á mjög eftirsóttum stað í Helgafellslandinu í Mosfellsbæ þar sem stutt er í náttúruna, frábærar gönguleiðir og alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.