Lýsing
Miklaborg kynnir: Um er að ræða snyrtilega og rúmgóða 98,6 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð á góðum stað í Grafarvogi. Yfirbyggðar svalir og mikið útsýni.
Eignin skiptist í stóra stofu með útgengi út á yfirbyggðar svalir í vestur. Við hlið stofu er eldhús með eldri innréttingu, gluggi við enda eldhússins og borðkrókur fremst. Sér þvottahús er innan íbúðar. Tvö svefnherbergi en á milli þeirra er rúmgott fílsalagt baðherbergi með glugga. Gólfefni eru parket og flísar.
Í sameign er 3,7 fm sér geymsla íbúðar auk hjóla- og vagnageymslu.
Gott bílaplan er við húsið.
Staðsetning er góð þar sem stutt er í skóla, þjónustukjarna og aksturleiðir úr hverfinu.
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is