Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurðsson
Vista
svg

187

svg

159  Skoðendur

svg

Skráð  30. maí. 2025

raðhús

Hamravík 13

800 Selfoss

70.900.000 kr.

706.879 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2520160

Fasteignamat

39.600.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
100,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Heimaland kynnir Hamravík 13, 800 Selfossi.

Um er að ræða þriggja herbergja endaraðhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar, Jórvíkurhverfi. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með bárujárni og bárujárn er á þaki. Lóð skilast þökulögð og innkeyrsla hellulögð með steyptu ruslatunnuskýli. 

Nánari lýsing eignar:
Íbúðin er skráð 100,3 fermetrar samkvæmt fasteignamati. Húsið selst á byggingarstigi 4, matstigi 7 eða fullbúin íbúð. 
Samkvæmt teikningu skiptist íbúðin í forstofu, alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. 

Forstofa er flísalögð með fataskáp. 
Eldhús er parketlagt, rúmgóð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Spanhelluborð og bakarofn í innréttingu. 
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfum. 
Svefnherbergin 3 eru öll með fataskápum og parketi á gólfum 
Baðherbergi er flísalagt með innbyggðum klósettkassa og upphengdu salerni, rúmgóðri gólfsturtu með gleri, innréttingu og línskáp. 
Þvottahús er flísalagt með rúmgóðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 

Vel skipulögð endaíbúð í snyrtilegu raðhúsi á Selfossi sem vert er að skoða betur. 

Nánari upplýsingar veita: 
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi, sími 868-7938, elisa@heimaland.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. des. 2024
38.800.000 kr.
204.500.000 kr.
10101 m²
20.246 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fasteignasalan Heimaland ehf.

Brúarstræti 2, 2.hæð - 800 Selfoss