Lýsing
Viltu fasteignir kynna vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Jörfabakka 12.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 74,2m2 og skiptist í stofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Í sameig í kjallar er sér geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjóla/vagnageymslu
Á Sölusíða eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit eignarinnar ásamt öðrum sölugögnum.
Fasteignamat 2026 - 51.950.000 kr.
Nánari lýsing:
Vel skiplögð íbúð á annarri hæð.
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang með innbyggðum fataskáp.
Stofan: Björt með parketi á gólfi, úr stofunni er gengið út á svalir sem snúa til vesturs.
Eldhús: Fínt skápapláss, ofn í vinnuhæð og gert ráð fyrir uppþvottavél. Góður eldhúskrókur við glugga parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott með stórum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi sem nýtist vel. Parket á gólfi
Baðherbegi: Mikið endurnýjað nýlega. Flísalagt ó hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu. Upphengt salerni.
Nýlegt parket er á allri eigninni að undanskildu gólfi á baði sem er málað. Stofa er rúmgóð með útgengi út á svalir.
Sér geymsla, tæpir 5 fm er í kjallara ásamt sameiginlegri geymslu fyrir meðal annars reiðhjól og barnavagna auk þvottaherbergis.
Frábær staðsetning í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið. - Ekkert vesen
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.