Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

1732

svg

1319  Skoðendur

svg

Skráð  31. maí. 2025

fjölbýlishús

Naustavör 50

200 Kópavogur

124.500.000 kr.

1.129.764 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2505201

Fasteignamat

100.400.000 kr.

Brunabótamat

83.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
110,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Hrafnkell og Atli á Lind kynna þessa glæsilega 110,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlegu 4ra hæða húsi við Naustavör 50 í Kópavogi. Íbúðin er einstaklega björt og vel skipulögð með gólfsíðum gluggum, viðarparketi og innfeldri lýsingu víðsvegar um íbúðina. Aukin lofthæð og gólfhiti er í íbúðinni ásamt svölum með svalalokun og sjávarútsýni. Eigninni fylgir einnig stæði í bílageymslu með hleðslustöð og sér geymsla.

Eignin skiptist í: forstofu, hol, barnaherbergi, hjónaherbergi með fataskápum, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús með eyju, stofu og borðstofu.

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 109.550.000 kr.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Hrafnkell P. H. Pálmason - Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Atli Karl Pálmason - Aðstoðarmaður fasteignasala /  662 4252 / atli@fastlind.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhús er bjart og glæsilegt með hvítri innréttingu frá Brúnás og parketi á gólfi. Stór eyja með ljósum steini á borði og gólfsíðum glugga.
Borðstofa og stofa í björtu alrými með hljóðvistarplötu í lofti. Gólfsíðir gluggar og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, gólfsíðum glugga og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og góðum fatskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, handklæðaofn og walk-in sturta með glerþili. Borðplatan er úr ljósum steini.
Þvottahús með innréttingu, vaski og flísum á gólfi.
Eigninni fylgja svalir til vesturs með svalalokun (9,7 fm).
Sér geymsla (9,7 fermetra) í kjallara fylgir eigninni og lyfta er í húsinu.
Stæði í bílageymslu fylgir eigninni með rafhleðslustöð.

Útsýni af svölum yfir Snæfellsjökul og fallegt útsýni af sólsetrinu af svölunum. Seinniparts og kvöldsól á svalapallinum sem er með nýrri svalalokun.

Eikarparket úr viði á gólfum, þykkari steinn á borðplötum í eldhúsi og baðherbergi. Útdraganlegur krani á vöskum í eldhúsi og þvotthúsi. Gardínur eru frá Nútíma og setja virkilega fallegan svip á íbúðina.

Íbúðin er í göngufæri við leikskóla og grunnskólann í hverfinu. Stutt í náttúrufegurð og göngusvæði hjá nauthólsvík og kópavogshöfn. 

Miðsvæðis og stutt í allar helstu þjónustur. Mjög barnvænt umhverfi með nýjum ungbarna og barna leikvelli ásamt sleðabrekku og fótboltavelli beint fyrir utan. 


Ekki er gert ráð fyrir að byggja blokk beint fyrir aftan sem er kostur upp á birtu og útsýni en Kópavogsbær og BYGG eru með skemmtileg plön fyrir svæðið í kring.

Allar innréttingar eru frá Brúnás, eldhústæki eru frá AEG og blöndunartæki frá Tengi. 


Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af acrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
Eldhúsinnrétting frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða virgo steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki í innréttingu frá Tengi. Vaskur undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti ásamt ljósagufugleypi frá Bræðrunum Ormsson. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu.

Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt og veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr ljósum steini. Á baðherbergi eru speglaskápar.
Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Sérgeymsla
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Rafmagnstengill er í sérgeymslu. 

Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.

Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Hönnuðir
Arkitekt: Gunnar Páll Kristinsson, Rýma arkitektar.
Verkfræðihönnun: VEKTOR - hönnun & ráðgjöf
Raflagnahönnun: Svanbjörn Einarsson, Tesla ehf.
Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.

Tilheyrir: Naustavör 44-50

Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is

Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Naustavör 50, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 04-09, fastanúmer 250-5201 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Naustavör 50 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-5201, birt stærð 110.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

img
Hrafnkell P. H. Pálmason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Hrafnkell P. H. Pálmason

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. feb. 2022
70.550.000 kr.
90.000.000 kr.
110.2 m²
816.697 kr.
15. apr. 2021
28.850.000 kr.
83.900.000 kr.
110.2 m²
761.343 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Hrafnkell P. H. Pálmason

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur