Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jóhannes E. Levy
Vista
fjölbýlishús

Þverholt 9

270 Mosfellsbær

107.950.000 kr.

696.003 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2085012

Fasteignamat

84.500.000 kr.

Brunabótamat

78.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
155,1 m²
svg
7 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Jóhannes E. Levy fasteignasali kynnir:  Sjö herbergja íbúð á tveimur hæðum, hæð og ris í reisulegu fjölbýli miðsvæðis í Mosfellsbæ.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu og borðstofu sem er allt á þriðju hæð.  Uppi um stiga úr stofu er gott sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi.  Íbúð, fastanúmer 2085012, íbúðareign merkt 01 0301 er skráð 155,1 m2 hjá HMS. Gólfflötur efri hæðar er mun stærri en birt stærð gefur til kynna þar sem stór hluti er undir súð. 

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð:  Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.  Þar við eru 2 svefnherbegi með dúk á gólfi og fataskáp. Eldhúsið er stórt og bjart með ljósri innréttingu, tveimur útsýnisgluggum, borðkrók og gegnheilu eikarparketi á gólfi.  Inn af eldhúsinu er svo þvottahúsið dúklagt.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu með handlaug, salerni og baðkari.  Stofan og borðstofan eru samliggjandi og bjartar þar sem hátt er til lofts, parketlagt með gegnheilli eik og útgengi á svalir (6,4 m2).  Íbúðarareign á 3. hæð telst 104,1 m2 og 4. hæð 51,0 m2.
Efri hæð.  Þegar komið er upp á efri hæð er gott sjónvarps og alrými parketlagt með gegnheilli eik, úr alrýminu er gengið inn í þrjú svefnherbergi; eitt stórt með dúk á gólfi og tvö minni með gegnheilli eik á gólfum og þakgluggum.  Á stigagangi fyrir framan íbúðina er sérgeymsla svo er hjólageymsla í sameign á jarðhæð ásamt sorpgeymslu.

Sameign er snyrtileg með nýju teppi á stiganum og nýlega málað.  Nýbúið er að skipta um þakjárn á húsinu og yfirfara þakið í heild sinni.  Fyrirhugað er að lagfæra múr og málningu utanhúss og mun seljandi greiða fyrir þá framkvæmd. Fallegt útsýni er m.a. til Esjunnar og Fellanna í næsta nágrenni.

Vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á góðum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla & íþróttir, heilsugæslu o.s.frv.

Nánari upplýsingar veitir
Jóhannes E. Levy, Löggiltur fasteignasali, í síma 7721050 eða tölvupósti

img
Jóhannes E. Levy
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sleipnir Fasteignasala
Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Sleipnir Fasteignasala

Korngörðum 5, 104 Reykjavík
img

Jóhannes E. Levy

Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Sleipnir Fasteignasala

Korngörðum 5, 104 Reykjavík

Jóhannes E. Levy

Korngörðum 5, 104 Reykjavík