Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2015
svg
222,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 10. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt endaraðhús, byggt árið 2015, að Ásaþingi 1 í 203 Kópavogi. Eignin er skráð 222,7 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 197,5 m2 og bílskúr 25,2 m2, og skiptist í anddyri, hol/gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpsstofu, þvottahús og geymslu á neðri hæð og stofu, eldhús, skrifstofu, baðherbergi og hjónaherbergi á efri hæð. Glæsileg og vel skipulögð eign!

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Nánari lýsing, neðri hæð.
Anddyri: Rúmgott og bjart, flísalagt, stór fataskápur og hiti í gólfi. 
Bílskúr: Innangengur frá anddyri, afar rúmgóður með stórri innréttingu og gluggum til norðurs. Á gólfi eru flísar. 
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis.
Baðherbergi: Sérsmíðuð innrétting, Quartz borðplata, vaskur úr granít steini, vegghengt WC, baðkar með sturtuhaus, hiti í gólfum og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Sjónvarpsstofa: Parket á gólfi, gluggar með opnanlegu fagi. Möguleiki að útbúa fjórða svefnherbergi eignar úr þessu rými. 
Þvottahús: Inn af sjónvarpsstofu. Rúmgóðir skápar, gott geymslupláss, vinnuborð með skolvaski, handklæðaofn á vegg. Á gólfi og á hluta veggjar eru flísar og í þvottahúsi er gluggi með opnanlegu fagi. 
Geymsla: Inn af þvottahúsi. Góðar hillur, mikil lofthæð og gluggi með opnanlegu fagi.
Efri hæð.
Stofa:
Parket á gólfi, gluggar meðfram suðurhlið sem færa mikla birtu inn í rýmið. Frá stofu er útgengt á skjólgóðar ca. 35m2 yfirbyggðar SV-svalir eignar. 
Eldhús: Í opnu rými með stofu. Stór og falleg innrétting, mikið skápa- og skúffupláss, ofn (AEG) í vinnuhæð, Quartz borðplata, eyja með AEG helluborði og Wave gufugleypi. Í eldhúsi er stór gluggi þar sem njóta má útsýnis yfir vatnið. Á gólfi eru flísar.   
Skrifstofa: Mikið skápapláss, parket á gólfi og gluggi til vesturs. Möguleiki á að útbúa fimmta svefnherbergi eignar úr þessu rými. 
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, stór gluggi til austurs, innfelld lýsing í lofti og innan herbergis er sér fataherbergi.
Baðherbergi: Falleg innrétting, Quartz borðplata, vaskur úr granít steini, vegghengt WC, gólfsíður gluggi með opnanlegu fagi, flísalagður sturtuklefi, handklæðaofn á vegg og hiti í gólfi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.

Fyrir framan eign er gott bílastæði, afmörkuð timbur-verönd og eign tilheyrir stór gróinn garður. 

Allar innréttingar og hurðir eru sérsmíðaðar og uppsettar af RH Innréttingum og eru hurðir með aukinni hæð og breidd. Borðplötur í eldhúsi og baðherbergjum úr Quartz Super White Glacier frá Granítsteinum ehf.
Flísar í eldhúsi og í votrýmum eru af tegundinni Concept Beige frá Agli Árnasyni. Ljós og rofar (GIRA) eru frá S. Guðjónssyni. Screen gardínur í stofu og myrkvagluggatjöld í herbergjum frá Zenus. Allt glerverk og speglar eru frá Ispan. Blöndunartæki voru sérpöntun frá BYKO og eru af tegundinni GROHE Allure (bað) og Minta (eldhús) og baðkar, handklæðaofnar, gólfrenna og salerni eru frá Tengi. 

Glæsileg og vel skipulögð eign í grónu hverfi. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. apr. 2015
10.450.000 kr.
56.000.000 kr.
222.7 m²
251.459 kr.
30. maí. 2014
11.250.000 kr.
93.000.000 kr.
1621.5 m²
57.354 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík