Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Vista
raðhús

Silfurtún 23

250 Garður

39.900.000 kr.

682.051 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2316837

Fasteignamat

32.650.000 kr.

Brunabótamat

33.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2008
svg
58,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir snyrtilegt og vel skipulagt 58,2 fm enda raðhús á einni hæð  við Silfurtún 23 í Garði í 250, Suðurnesjabæ.
Verönd að framan með skjólveggjum og einnig pallur að aftan með skjólveggjum milli íbúða. Góð bílastæði framan við hús. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi, herbergi/geymslu ásamt rúmgóðu baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu. Gólfhiti í öllu húsinu.

 
Eignin er í heild skráð 58,5  fm skv. Þjóðskrá Íslands,
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 38.600.000.-   Byggingarár er 2008.

Nánari lýsing:
Anddyri – Fataskápar úr eik. Flísar á gólfi.
Eldhús – Er beint inn af anddyri með hvítri innréttingu með  innbyggðum ísskáp sem fylgir ásamt uppþvottavél sem einnig fylgir. Borðkrókur á hægri hönd við innréttingu þegar inn er komið úr anddyri. Flísar á gólfi.
Stofa – Bjart stofurými opið við eldhúss með flísum á gólfi.
Baðherbergi – Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, hvítri innréttingu og góðu rými fyrir þvottavél og þurkara.
Barnaherbergi/geymsla – Innst inni af herbergisgangi með hurð út á sólpall. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi – Ágætlega rúmgott herbergi með tveimur fataskápum og parket á gólfi.
Gólfefni/ innréttingar:  Flísar eru á flestum gólfum hússins að undanskyldu hjónaherbergi þar sem er parket. Gólfhiti er í öllu húsinu. Innrétting í anddyri er úr eik. Hurðar eru úr eik.

Virkilega snyrtilegt enda raðhús sem hugsað hefur verið vel um og sömu eigendur búið í frá upphafi.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Hákon Ólafur Hákonarson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Hákon Ólafur Hákonarson

Hafnargötu 15, 230 Keflavík