Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Þinghólsbraut 8

200 Kópavogur

164.900.000 kr.

867.895 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2066204

Fasteignamat

127.250.000 kr.

Brunabótamat

90.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
190 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 11. júní 2025 kl. 17:15 til 17:45

Lýsing

** Opið hús miðvikudaginn 11. júní frá kl. 17:15 til 17:45 -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **  

FASTMOS kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr við Þinghólsbraut 8 í Kópavogi. Eignin er skráð 190,0 m2 þar af íbúð 146,0 m2 og bílskúr 44,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. Sérstæður bílskúr stendur við húsið. Húsið stendur á 753 m2 gróinni og fallegri  lóð. Timburverönd til suðurs með skjólgirðingu. Rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (sem á eftir að tengja). Spennandi eign á vinsælum stað á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs. Stutt í alla helstu þjónustu og vinsæl útivistarsvæði.


1994: Þak byggt yfir flatt þak. Húsið klætt að utan. 2006: Bílskúr klæddur og ný bílskúrshurð. 2017: Hiti settur í gólf, skipt um gólfefni á öllu húsinu, baðherbergi endurnýjuð, eldhús endurnýjað. Nýjar innréttingar á baði og í eldhúsi frá Ikea. Laus skápur í hjónaherbergi fylgir húsinu. Sturta, salerni, handlaugar og blöndunartæki koma frá Tengi. Rafmagn yfirfarið og tafla endurnýjuð. 2022: Jarðvegsskipti, hellulögn, hitabræðslurör lögð í plan en eru ótengd. Lagnir endurnýjaðar úti, skipt um skólp, ný kaldavatnslögn tengd og heitavatnslögn yfirfarin.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Hol er með flísum á gólfi. Úr holi er opið inn í stofu og borðstofu, eldhús og svefnherbergisgang.
Stofa og borðstofa er björt með flísum á gólfi. Í miðju rýminu er arinn og hlaðinn múrsteinsveggur. 
Eldhús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápa- og skúffuplássi. Blástursofn og örbylgjuofn frá AEG, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar.
Þvottahús með stórum handklæðaofni er inn af eldhúsi. Útgengt í bakgarð og að bílskúr.
Svefnherbergisgangur er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með flísum á gólfi. 
Svefnherbergi 3 er með flísum á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Flísar eru á veggjum að hluta. Góð innrétting með handlaug, vegghengt salerni og "walk-in" sturta með glerskilrúmi. Handklæðaofn er gegnt sturtunni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Forstofa er með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn í gestasnyrtingu og svefnherbergi.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með flísum á gólfi. Rýmið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með flísum á gólfi og veggjum að hluta, handlaug og vegghengdu salerni.
Bílskúr er skipt upp í bílskúr og geymslu með skilrúmi. Rýmið er ófrágengið að hluta.
Bílaplan er hellulagt og búið er að leggja fyrir snjóbræðslu sem á eftir að tengja.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 143.500.000,- 

Verð kr. 164.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jan. 2013
41.900.000 kr.
40.000.000 kr.
190 m²
210.526 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ