Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
242,6 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Rúmgott og vandað endaraðhús á tveimur hæðum með gluggum í þrjár áttir og með innbyggðum bílskúr á mjög góðum og rólegum stað við Sandakur í Garðabæ.  Mjög stór bílastæði fyrir framan húsið.  Tvennar svalir eru á húsinu auk skjólsællar afgirtrar lóðar með viðar- og hellulagðri verönd. Gólfhiti er í stærstum hluta hússins en ofnar eru í svefnherbergjum.  Tvenn baðherbergi og gestasalerni. Húsið var allt innréttað árið 2010.  Auðvelt er að gera fjórða svefnherbergið á efri hæð eignarinnar. 

Lóðin er fullfrágengin með stórri hellulagðri innkeyrslu fyrir amk. 4 bíla auk þess sem lóðin vestan við húsið, sem er afgirt með girðingu og hliði, er hellulögð og þar er mjög mikið geymslupláss t.d. fyrir fellihýsi og slíkt. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 242,6fm. og þar af er innbyggður bílskúr 28,9fm. 
Fasteingamat fyrir árið 2026 verður 185.700.000kr


Nánari lýsing eignar
Neðri hæð 
Forstofa rúmgóð og björt með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Hol/gangur með flísum á gólfi. 
Gestasnyrting mjög rúmgóð með glugga, snyrtileg innrétting og flísalagðir veggir og gólf. 
Stofa/borðstofa mjög rúmgóðar með flísum á gólfi.  Útgengt er út á stóra afgirta viðarverönd með skjólveggjum.  Á verönd er rúmgóður geymsluskúr með rafmagni.  Verönd og geymsluskúr eru frá árinu 2014.
Eldhús er opið við stofu, falleg eikar/hvítum innréttingum með graníti á borðum, gott borðpláss, innbyggð uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, gufugleypir og flísar á gólfi.
Geymsla rúmgóð með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Bílskúr mjög rúmgóður, rafmótor á bílskúrshurð sem er um 2,4 metra há, vinnuborð með vaski og epoxy á gólfi. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Gengið er upp á efri hæð hússins upp steyptan parketlagðan stiga með handriði úr gleri.

Sjónvarpsstofa mjög rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á 9,6 fermetra svalir til norðurs. Mögulegt er að gera rúmgott svefnherbergi úr hluta sjónvarpsstofu.
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi og bæði með fataherbergi og baðherbergi innaf.  Út af hjónaherbergi er útgengi á skjólsælar 9,6 fermetra svalir til suðurs með útsýni að Reykjanesinu.
Fataherbergi með góðum innréttingum og parket á gólfi. 
Baðherbergi  með stórri innangengri sturtu með öryggisgleri, gluggi, góð innrétting og flísar á veggjum og gólfi. 
Svefnherbergi II rúmgott með fataskápum og parket á gólfi. 
Svefnherbergi III rúmgott með fataskápum og parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, innrétting, gluggi og flísalagt gólf og veggir.
Þvottahús með góðri innréttingu, vélar í vinnuhæð, vinnuborð með vask og flísar á gólfi. 

Húsið að utan er klætt með báruáli með innbrenndum lit og er í góðu ástandi.  Gluggar eru ál/tré.  Forhitakerfi á vatni. 

Lóðin er fullfrágengin með fjölmörgum bílastæðum fyrir framan hús, hellulögðu afgirtu svæði vestan við hús, sem er tilvalið fyrir fellihýsi og slíkt og viðarverönd til vesturs og norðurs.

Eignin er vel staðsett í rólegri botngötu þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, menntaskóla og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. jún. 2018
82.200.000 kr.
95.000.000 kr.
242.6 m²
391.591 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík