Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
svg

330

svg

257  Skoðendur

svg

Skráð  7. jún. 2025

sumarhús

Hjarðarholtsvegur 16

276 Mosfellsbær

24.900.000 kr.

541.304 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2086466

Fasteignamat

20.200.000 kr.

Brunabótamat

15.960.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
46 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna: 

Mjög fallegan og mikið endurnýjaðan eldri bústað í góðu viðhaldi ásamt bátaskýli við Meðalfellsvatn í Kjós.

Um er að ræða 33,5 fm hús ásamt u.þ.b. 5 fm geymsluskúr, 12,5 fm bátaskýli niður við Meðalfellsvatn og stendur á gróinni 1600 fm leigulóð úr landi Meðalfells.

Aðeins er um 30 min akstur að Meðalfellsvatni frá Mosfellsbæ.

Dælisá rennur við lóðarmörk og er góður sólpallur sunnan við húsið.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahúsi, góðu holi og eldhúsi opið við stofu/borðstofuhluta hússins ásamt geymslu.

Húsið er rafmagnskynnt með rafmagnsofnum, einnig góður hiti í alrými úr kamínu þegar kynnt og hitakútur er fyrir neysluvatn.

Rafmagn var tekið inn í húsið 2015 og töluvert miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu síðan 2012 þegar núverandi eigandi fékk það afhent.

Falleg kamína er í stofunni sem kyndir vel þegar kveikt er upp í henni, notuð í dag til eldunar ásamt örbylgjuofni.

Hitaveitutenging er úti í götu og getur nýr eigandi borgað tengigjald og tekið hitaveitu inn í hús, kjósi hann það. Upplýsingar um hitaveitu finnst á www.kjos.is /kjosarveitur og á skrifstofu Kjósárhrepps, Ásgarði, Kjósárhreppi. 2018 var lagt hitaveita og ljósleiðara í hverfið og er inntakið við lóðamörk. Sækja þarf um tengingu hjá hreppnum og greiðir húseigandi fyrir lagningu.

Allt innbú fylgir með utan persónulegra muna.

Nýr lóðarleigusamningur við landeiganda til 25 ára mun fylgja með til kaupanda.

Saga húss og endurbætur síðustu ára:
Þegar núverandi eigandi eignaðist húsið 2012 þá var húsið kynnt með gasofni og sólarsella fyrir rafmagn.Við upphaf eignarhalds núverandi eiganda var klósetti skipt út eftir frostskaða og þarf að setja frostlög á það yfir veturinn. Árið eftir frusu vatnslagnir og þeim skipt öllum út, settur upp hitakútur og bætt við sturtu í húsið. Einnig var rafmagn tekið inn í húsið og settir rafmagnsofnar í öll herbergi og ljós. Í húsið voru þá sett þvottavél, ísskápur og rafmagnseldavél, sem enn eru og fylgir með húsinu. Hitaþráður liggur frá upp í hitakút. Endurbætur á við utandyra er rúllandi verkefni og mikið verið gert síðustu ár, búið að rífa eitthvað af fúnum sólpöllum burtu, ágætis pallur sunnanmeginn stendur og búið er að endurnýja fúinn vegg sem er við sólpallinn og einnig er pallurinn rampaður. Gluggarammar og gler að sunnan og vestan meginn voru endurnýjuð í fyrra og skipt um við undir þeim. Gólf undir snyrtingu og geymslu var einangrað með steinull og lagt músanet. Næstu verk eru að einangra útveggi geymslunnar og til er steinull sem geymd er í bátaskýli. Gamla sólarsellan er uppi á þaki við snyrtinguna og veitir ennþá hita þegar vel viðrar. 2012 þegar núverandi eigandi tók við húsinu þá lak þakið, var þá farið yfir festingar og lagað eftir þörfum, ekki lekið síðan. Rennur allar endurnýjaðar. Geymslan við bústaðinn styrkt þar sem sumar fjalir voru fúnar á sunnanvegg. Mála þarf húsið á 3-4ra ára fresti að utan og var það gert núna 2025. Bera þarf fúavörn á sólpall og hlið á 2ja ára fresti. Nýtt hlið við Hjarðaholtsveg var sett 2015. Hægt er að sækja um stækkun á lóð við innkeyrslu og hafa sumir gert það til að fá fleiri bílastæði. Bátaskýli við vatnið þarf að fara fá lagfæringu á þaki en hurðin var endurnýjuð nýlega. Hlið út að Dælisá datt af í stormi og bíður lagfæringar. Efni til endurnýjunar er í bátaskýli, einnig meiri eldiviður í kamínu sem líka er meira af í geymslu við lóðina. Verkfæri og efni til endurnýjunar finnst í og við geymslu og bátaskýli. Barnahús var smíðað 2021 og tampólín fest norðanmeginn 2018. Skógurinn á lóðinni er með blöndu af furu, öspum og birki. Mögulegt að setja upp garð norðanmeginn við húsið. Lúpína og tré þarfnast grisjunar á hverju ári. 

Rekstrarkostnaður:
Fasteignagjöld 2025 = 122.100 kr árgjald.
Tryggingar 2025 = 50.262 kr árgjald.
Sumarhúsafélag ca. = 12.000 kr árgjald.
Vatnsveitan ca. = 20.000 kr árgjald.
Rafmagn miðað við notkun, núna ca. = 6.000 kr á mánuði.
Lóðarleiga 2025 = 177.803 kr ársgjald.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. jún. 2012
4.481.000 kr.
8.000.000 kr.
46 m²
173.913 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone