Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
svg

198

svg

151  Skoðendur

svg

Skráð  12. jún. 2025

fjölbýlishús

Jöfursbás 7

112 Reykjavík

66.600.000 kr.

896.366 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518560

Fasteignamat

58.550.000 kr.

Brunabótamat

50.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
74,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Jöfursbás 7, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Bóka má skoðun hjá Sölva á netfang solvi@domusnova.is eða í s 618-0064

Lýsing

Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf, kynna Jöfursbás 5B – íbúð 205: Vel skipulögð og björt 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með glæsilegu útsýni að Geldinganesi og sjó í nýlegu vönduðu fjölbýlishúsi.
Íbúðin er vel hönnuð með vönduðum innréttingum og gólfhiti er í allri íbúðinni. Gólfsíðir gluggar, aukin lofthæð c.a 280 cm og mikið útsýni.

Íbúðin er skráð samkv. Þjóðskrá 74,3 m² og þar af er geymsla 6,2 f m².
  • sjávarútsýni
  • aukin lofthæð 
  • sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
  • vönduð gólfefni
  • gólfhiti
  • gólfsíðir gluggar
  • quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
  • snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
  • spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Nánari lýsing
Anddyri er með harðparketi á  gólfi og innbyggðum fataskáp milli veggja.
Eldhús með sjávarútsýn opið inn í stofu með sérsmíðaðri innréttingu frá Voke sem nær til lofts.  Innrétting er vönduð með granit borðplötu undirfelldum vasku og niðurfelldu spanhelluborði.
Stofa með gólfíðum glugga, glæsilegu útsýni að sjó og útgengt á norðaustur svalir með stórbrotnu útsýni til sjávar.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum skápum sem ná til lofts og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt vönduðum flísum, veggflísar ná að lofti og er gólf flísalagt ásamt sturturými þar sem glerþil er við sturtu. Vönduð innrétting með granitborðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Sér geymsla í sameign. Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins.
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.  Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Lofthæð 280.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. sep. 2023
52.650.000 kr.
62.500.000 kr.
74.3 m²
841.184 kr.
12. nóv. 2022
3.960.000 kr.
66.900.000 kr.
74.3 m²
900.404 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone