Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Lindasíða 4 íbúð 602

603 Akureyri

49.900.000 kr.

692.094 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148829

Fasteignamat

41.319.000 kr.

Brunabótamat

42.120.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
72,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Lindasíða 4 íbúð 602 - Góð 2ja herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi með skemmtilegu útsýni til suð- vesturs - Heildarstærð 72,1  m² þar af telur sér geymslu í kjallara 4,4 m² og er hún á sér fastanúmeri.

* Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning *


Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Einnig fylgir íbúðinni sér geymsla í kjallara.

Forstofa er með parketi á gólfi og hvítum skápum.
Eldhús er með ljósri sprautulakkaðri innréttingu með flísum á milli skápa og parketi á gólfi. Uppþvottavél fylgir með við sölu eignar.  
Stofa og eldhús eru í opnu rými og þar er parket á gólfi. 
Sólstofa er inn af eldhúsinu með parketi á gólfi og þaðan er gengið út á steyptar svalir til suð- vesturs.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og stórum hvítum fataskáp. 
Baðherbergi er með slitsterku efni á gólfi og flísum á hluta veggja. Ljós sprautulökkuð innrétting, wc og sturta. Tengi fyrir þvottavél er inn á baðherberginu.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með lökkuðu gólfi og hillum, hin geymslan er í kjallara og skráð 4,4 m² að stærð.

Annað
- Snyrtileg sameign.
- Mikið og gott útsýni er úr íbúðinni.
- Nýleg lyfta er í húsinu.
- Eign fyrir 60 ára og eldri.
- Yfirbyggður gangur er á milli Lindasíðu 2 og 4 og yfir í þjónustumiðstöðina í Bjargi.
- Eignin er í einkasölu 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2020
25.500.000 kr.
28.500.000 kr.
73.5 m²
387.755 kr.
18. mar. 2014
14.550.000 kr.
18.600.000 kr.
73.5 m²
253.061 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone