Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

404

svg

335  Skoðendur

svg

Skráð  13. jún. 2025

fjölbýlishús

Fálkagata 26

107 Reykjavík

48.900.000 kr.

1.257.069 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028534

Fasteignamat

42.800.000 kr.

Brunabótamat

18.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1926
svg
38,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Fálkagata 26, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 102 Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir fallega nýlega uppgerða stúdíóíbúð á þessum eftirsótta stað í Vesturbænum. Tilvalin fyrir fyrstu kaupendur eða til útleigu. Eldhúsið var endurnýjað árið 2020 ásamt baðherbergi þar sem sett var inn nýtt klósett, sturta og baðherbergi flísalagt. Þá var rafmagn, vatns- og frárennslislagnir endurnýjað að hluta til.

Eignin Fálkagata 26 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-8534, birt stærð 38.9 fm.


Nánari lýsing: Frá sérinngangi er komið inn í íbúðina. Á vinstri hönd er eldhús með nýlegri eldhús innréttingu sem er með góðu skápaplássi, nýlegt harðparket á gólfi. Björt og rúmgóð stofa, harðparket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa og klósetti, flíslagt í hólf og gólf.
Þvottahús er sameiginlegt með sér stæði fyrir hverja íbúð.
Garðurinn er rúmgóður og sameiginlegur fyrir alla íbúa.

Frábær staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur stutt frá Háskólanum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. sep. 2020
27.250.000 kr.
25.000.000 kr.
38.9 m²
642.674 kr.
13. mar. 2020
27.250.000 kr.
23.000.000 kr.
38.9 m²
591.260 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone