Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1967
123,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Opið hús: 15. júní 2025
kl. 14:15
til 15:00
Opið hús: Auðbrekka 16, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. júní 2025 milli kl. 14:15 og kl. 15:00.
Lýsing
Betri stofan og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali kynna fallega, bjarta og mikið uppgerða 123,4fm útsýnisíbúð á 3. hæð að Auðbrekka 16, 200 Kópavogur. Íbúðin er í New York style með stóru, björtu og opnu alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. 3 metra lofthæð er í íbúðinni með stórum gluggum í 3 áttir. Útsýni úr stofu er til norðurs með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, yfir Fossvofinn og út til Esjunnar. 2 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með góðum fataskápum. Baðherbergi og þvottahús er í sameiginlegu rými, endurnýjað á vandaðan hátt árið 2023. Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu og afar góðu skápa og vinnuplássi. Eldhús var endurnýjað árið 2017. Geymsla / búr er innan íbúðar. Sameiginlegur inngangur er með fyrstu og annarri hæð en gengið er upp steyptar tröppur á þriðju hæð, fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli. Í dag eru það einungis eigendur hæðarinnar sem nýta innganginn. Afar falleg, opin og björt útsýnisíbúð í vinsælu hverfi í Kópavoginum.
Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 er skv. HMS 84.900.000kr
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is
Eignin er staðsett í blandaðri byggð með íbúðarhúsum asamt atvinnu- og þjónustuhúsnæðum í bland. Mjög góð staðsetning í Kópavoginum með leik-, grunn- & framhaldsskóla í nágrenninu og þá er ekki mjög langt í háskólanna. Þá er ekki langt í rómað og fjölbreytt íþrótta- og tómstundarstarf Breiðabliks og HK. Góð tenging við stofnbraut. Öll helsta verslun og þjónusta allt í kring. Þá eru útivistarperlurnar í Fossvoginum og í Kópavogsdalnum í nágrenninu með fallegum hjóla- og gönguleiðum.,
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 123.4 fm. Allir fermetrar eignar eru innan íbúðar.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Gengið inn á vesturhlið hússins. Sameiginlegur með 1. og 2. hæð. Aðeins nýtt af íbúðinni sem stendur. Fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli fyrir framan inngangshurð.
Alrými: Komið inn í afar rúmgott, opið og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús: Opið og samliggjandi stofu. Eldhús endurnýjað árið 2017. Innrétting U laga með góðu skápa og vinnuplássi. Ofn í vinnuhæð og spanhelluborð, aðstaða fyrir uppþvottavél og tvöfalldan ísskáp (ísskápur getur fylgt með). Aðstaða fyrir 4-5 barstóla við eldhús. Fallegt, vel hannað og praktískt hannað eldhús.
Búr: Við hlið eldhúss, innaf borðstofu með rennihurð. Gott geymslupláss með upphengdum hillum.
Stofa: Afar rúmgóð, opin og björt samliggjandi stofa og borðstofa, opin við eldhús. 3M lofthæð (í allri eigninni) og falleg gluggasetning með stórum gluggum. Stórbrotið úrsýni yfir Reykjavík, út á Fossvoginn og út á Esjuna.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2023 á vandaðan og fallegan máta. Innbyggður sturtuklefi með glerhurð, baðkar, upphengt klósett ásamt baðinnréttingu með skúffum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ofan á skúffueiningu. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum með terrazzo munstri að undanskyldum einum vegg sem er með sægrænum subway flísum á vegg. Afskaplega rúmgott, vel hannað og fallegt baðherbergi.
Svefnherbergi I: Innaf stofu. Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Í suðurenda í búðar. Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á suðursvalir.
Gólfefni: Plankaparket á öllum rýmum að undanskyldu baðherbergi sem er flísalagt.
Hita og rafmagnskostnaður: Inntök hita er staðsett í rými 0102 og einnig hitamælar. Sér hitamælar fyrir hverja eign. Rafmagn fyrir allar eignir eru á sér mælum og eru rafmagnsmælar staðsettir í viðkomandi eignum.
Við Auðbrekkuna er öll helsta verslun og þjónusta í nánasta nágrenni. Nýbýlavegurinn hefur blómstrað síðustu ár, fjölmargar verslanir, kaffihús og veitingarstaðir er þar að finna og fjölbreytninni hefur aldrei verið meiri. Hamraborgin í nokkra mínútna göngufjarlægð með þjónustu- og verslunarkjarna. Þá er ekki langt í Smáralindina og í Kringlunna með allt sem þær verslunarmiðstöðvar hafa upp á að bjóða. Lágvöru matvörurverslanir í nágrenninu. Afar miðsvæðis með góðar tengingar við stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. feb. 2017
37.250.000 kr.
37.000.000 kr.
123.4 m²
299.838 kr.
13. okt. 2016
32.850.000 kr.
42.000.000 kr.
123.4 m²
340.357 kr.
12. mar. 2012
12.030.000 kr.
23.000.000 kr.
138.5 m²
166.065 kr.
27. mar. 2007
12.730.000 kr.
18.000.000 kr.
10301 m²
1.747 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025