Lýsing
Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Mávahlíð 40, 105 Reykjavík. Þriggja herbergja íbúð í kjallara í fjórbýli. Getur verið laus við kaupsamning.
Tilvalin fyrsta eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri við miðbæinn. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Mávahlíð 40, kjallari. Íbúð á hæð 89,4m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: anddyri, forstofa, tvö herbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, geymsla.
Í sameign: þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Sérinngangur íbúðar við vinstri hlið húss, hálfniðurgrafinn kjallari.
Andyri: er með fatahengi og flísum á gólfi.
Herbergi I: er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Góð innrétting, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með í kaupum, flísar á gólfi.
Hol: Sem tengir öll rými eignarinnar, er rúmgott með parket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott herbergi með skáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Falleg og rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Sturta, flísar á veggjum og gólfi. opnanlegur gluggi.
Geymsla: innangengt frá holi íbúðar.
Í sameign er þvottahús og hjólageymsla.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00.