Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1946
275 m²
8 herb.
4 baðherb.
8 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Opið hús: 25. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Efstasund 11, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun fasteignasala og Ingimar Másson löggiltur fasteignasali kynna: Einbýlishús með fjórum íbúðum . Vel staðsett 275 fm hús við Efstasund. Byggt var við eignina 2006 og er því hluti hússins nýrri.Frábær staðsetning og eftirsóttar leiguíbúðir. Tvö fastanúmer eru á húsinu. Ath. fasteignamat árið 2026 verður 166.550.000
Nánari lýsing:
Um er að ræða vel staðsett hús við Efstasund með fjórum íbúðum, þar af er ein í innréttuðum bílskúr.
Íbúð 1, Aðal hæð hússins (106,8 fm) með sérinngangi af stórri verönd við suðurhlið hússins. Einnig er inngangur frá götu. Hurðir hafa nýlega verið endurnýjaðar. Í íbúðinni eru fimm svefnherbergi, sem eru öll í útleigu. Baðherbergi er nýlega endurnýjað með upphengdu salerni, sturtu með gleri og opnanlegum glugga. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu með góðu skápaplássi. Rúmgóð flísalögð forstofa/hol. Stofan er björt með gluggum á tvo vegu með rennihurð út á verönd. Þvottaaðstaða er í kjallara.
Íbúð 2, studioíbúð í kjallara ( 49,9 fm) sem er í útleigu með sér bílastæði og inngangi frá norður hlið. Flísalögð gólf og endurnýjuð eldhúsinnrétting. Rúmgott baðherbergi með stórum sturtuklefa og innrétting með vask. Þvottaaðstaða og geymsla í kjallara.
Íbúð 3, rísíbúð, þriggja herbergja á sér fastanúmeri ósamþykkt (62,3 fm) íbúð sem er í útleigu. Gengið er upp stiga á norðurhlið þar sem er mjög stór þak verönd með útsýni, sér inngangur er í íbúðina frá veröndinni. Tvö ágæt svefnherbergi. Hol, baðherbergi með innréttingu, baðkari og tengi fyrir þvottavél. Eldhús með ágætis innréttingu og stórum glugga, plássi fyrir eldhúsborð. Stofa/ inngangur með hurð út á verönd. Jafnframt er inngangur frá götu inn á 1 hæð í sameiginlegt hol og stiga upp í íbúð.
Íbúð 4, innréttaður bílskúr. Tveggja herbergja (56,0) mikið endurnýjuð íbúð. Nýtt þak, rafmagns- og vatnslagnir. Forstofa með fatahengi. Opið eldhús með eyju samliggjandi við stofu, hljóðeinangrandi plötur á veggjum. Baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtuklefa með gleri, innréttingu og opnanlegum glugga. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsið er klætt að utan og nýlega málað. Stór innkeyrsla með nægum bílastæðum.
Nánari upplýsingar veitir Ingimar Másson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 6122277, tölvupóstur ingimar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. feb. 2022
71.700.000 kr.
75.000.000 kr.
212.7 m²
352.609 kr.
12. feb. 2015
41.400.000 kr.
40.500.000 kr.
212.7 m²
190.409 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025