Lýsing
Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða 43,2 fm opna og bjarta stúdíó íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri og rúmgóðri hellulagðri suðurverönd sem er með lokun. Húsið var múrviðgert og málað fyrir ca 2 árum síðan. Stutt er í alla helstu þjónustu m.a. leik- og grunnskóla, verslun, líkamsrækt, bókasafn og náttúruperluna Elliðarárdal.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og skápur.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á stóran hellulagðan lokaðan suðurpall.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og svört borðplata.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, vaskur og skápur undir, wc og sturtuklefi.
Þvottahús er í sameign.
Geymsla er inn af stofu og sameiginleg í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.