Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Vista
atvinnuhúsnæði

Sólborg Kirkjusandur

105 Reykjavík

Tilboð

Fasteignanúmer

F2507542

Fasteignamat

169.100.000 kr.

Brunabótamat

297.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2020
svg
305,8 m²
svg
1 herb.

Lýsing

Miklaborg kynnir til leigu: Hverfis verslunarkjarninn við Kirkjusand. • Ný hverfis verslunarmiðstöð í rótgrónu fjölmennu hverfi • Stærðir 305 og 142 fm verslunar eða þjónustubil • Tengt viðskiptamiðstöðinni í Borgartúni • Mikil íbúðaruppbygging á svæðinu og allt í kring • Heilsugæsla í Sjávarborg (við hlið Sólborg) með 50 þús. heimsóknir ári • Stórir gler verslunarfrontar við allar götur • Beint aðgengi að mjög stórum opnum bílakjallara

Verslunarhúsnæðið við Sólborg er við torgið í nýja fjölmennu hverfi á Kirkjusandi. Sannkallað hjarta hverfisins og Hallgerðargötu og tengist gamla hverfinu við Laugarnes. Á torginu er opin tenging við stóran bílakjallara sem liggur undir öllu hverfinu með mikið af bílastæðum. Stórir verslunargluggar við allar götur eru einkenni hönnunar og því verður sýnileiki og auglýsingarmöguleikar miklir fyrir rekstraraðila. Nýja Kirkjusandshverfið er nýtt þétt borgarhverfi og þar hafa og munu rísa mikið af nýjum íbúðum beint inn í stórt rótgróið hverfi. Þessi uppbygging skilar miklu fjölmenni allt í kringum verslanirnarásamt því að hverfið sé beint framhald af stærsta viðskiptahverfi landsins í Borgartúni. Samtals er búið að byggja 210 nýjar íbúðir á Kirkjusandi og tæplega 100 íbúðir eru í byggingu. Í undirbúningi fyrir byggingu eru um 350 íbúðir við Kirkjusand. Þá eru
rúmlega hundrað íbúðir á leiðinni við Sigtúns reit steinsnar frá hverfinu og áform eru um þéttingu byggðar með íbúðum við Listaháskólareitinn. Líklega verða því um 1.000 nýjar íbúðir risnar á þessu svæði innan skamms ásamt því að mikil og vaxandi íbúðarbyggð sé hinu megin við lækinn við Borgartún. í Sjávarborgarhúsiu við hliðina á Sólborg er síðan stór hverfis heilsugæsla á aðra hæð ásamt apóteki á jarðhæðinni. Áætlaðar komur í heilsugæsluna eru strax um 50 þús. manns á ári og áform eru um stækkun heilsugæslunnar.

Þetta er í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkurborgar sem áformar að við Laugarnes fjölgi íbúðum frá 2010 til 2030 um rúmlega 2000 íbúðir. Það passar við að íbúar fjölgi úr 15,2 þús. í tæplega 20 þúsund.
Ljóst er af öllu að Sólborg mun virka sem sterkt hverfis verslunarakkeri fyrir fjölmennan hóp viðskiptavina ásamt nærliggjandi byggð. Af þessum sköpum hefur einmitt verið lagður mikill metnaður í skipulagsvinnu og uppbygginguna. Hverfið tengist Borgartúni frá Sundlaugavegi, aðrar tengingar eru frá
Sæbraut og Laugarnesi. Þá eru góðir göngu og hjólastígar við hverfið í allar áttir ásamt því að ný borgarlína sé áformuð með stoppistöð við það.

Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík