Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

99

svg

85  Skoðendur

svg

Skráð  25. jún. 2025

fjölbýlishús

Dugguvogur 15

104 Reykjavík

86.900.000 kr.

424.316 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512106

Fasteignamat

160.500.000 kr.

Brunabótamat

120.060.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
204,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Dugguvogur 15 íbúð 211, merkt 00-27. Stæði merkt. B42 104 Reykjavík 

Glæsileg íbúð við Vogabyggð. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í hverfinu sem staðsett er við Elliðavog. Stutt er í alla þjónustu og nálægð við hafið og ósnortna náttúru.
Íbúðin er með vönduðum innréttingum frá ítalska framleiðandanum Gili Creation, gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vínilparket frá Gólfefnavali ehf. fylgir.
Þá eru öll baðherbergi og þvottahús með flísum frá Gili Creation. Silestone kvartsteinn á borðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi, þvottavél og þurrkari  fylgir í þvottahúsum/rýmum

Nánri lýsing eignar.
Komið er inn í anddyri, beint inn af er herbergi 8,4 fm. Herbergi 9,1 fm. 
Komið er  inn í alrými eignarinnar. Eldhús og stofa eru í opnu samliggjandi rými. Frá borðstofu er útgengi út á svalir sem snúa í vesturátt. 
Hjónaherbergier  13,4 fm, 4ra herb. 104,8 fm. Geymsla 5,5 fm
Baðherbergi er með flísalögðum sturtubotn, sturtugler úr reyklituðu gleri sem nær frá gólfi í loft innrammað í svartan álramma. Handlaug er undirlímd í innréttingu, upphengt salerni, handklæðaofn.

Um bílakjallarann:
Við húsið er bílakjallari með 57 bílastæðum, sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu, tæknirýmum og geymslum sem fylgja hverri íbúð. Innkeyrsla í bílakjallara er frá Kuggavogi. Ofan á bílakjallaranum er svo sameiginlegur garður með gróðri og leiktækjum. Húsið er stallað og því ýmist 3-4 hæða.

Ytri frágangur og lóð:
Veggir utanhúss: Veggir eru staðsteyptir, einangraðir að utan með steinull. Húsið er klætt að utan með Triple S álkerfi frá Áltak ehf. ýmis með Cembrit sementsplötum, 2mm hvítu áli eða gráu lábáru áli samkvæmt teikningum arkitekts. Uppbygging hússins er miðuð við að uppfylla gildandi reglugerð hvað varðar uppbyggingu útveggja og einangrun.
Þak: Uppbygging þaks er samkvæmt teikningum hönnuða
Svalir: Eru forsteyptar og ómeðhöndlaðar.
Þaksvalir og sérafnotafletir: Eru með uppstóluðu flísakerfi frá Álfaborg.
Gluggar: Eru ál/timbur frá danska framleiðandanum Ideal Combi
Lóð: Er fullfrágengin, hellulögð og tyrfð í samræmi við teikningar arkitekts

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Prima fasteignasala ehf
Suðurlandsbraut 6
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2022
29.050.000 kr.
74.500.000 kr.
102.4 m²
727.539 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6

Björgvin Þór Rúnarsson

Suðurlandsbraut 6