Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
svg

1078

svg

778  Skoðendur

svg

Skráð  2. júl. 2025

fjölbýlishús

Jóninnuhagi 1 204

600 Akureyri

68.900.000 kr.

773.288 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515196

Fasteignamat

53.750.000 kr.

Brunabótamat

54.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
89,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. júlí 2025 kl. 16:15 til 16:45

Opið hús: Jóninnuhagi 1 204, 600 Akureyri, Íbúð merkt: 03 02 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. júlí 2025 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Jóninnuhagi 1 íbúð 204. Björt og falleg 3-4 herbergja 89,1 fm íbúð með sér inngangi á efri hæð í vestur enda í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi, fallegt útsýni er úr íbúðinni.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi ( eitt skráð sem geymsla ), baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt sér geymslu og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Forstofa / gangur:
Ljóst harð parketi á gólfi og svartur skápur. 
Eldhús: Svört plastlögð innrétting með innbyggðum ísskáp með frysti og uppþvottavél. Span helluborð og bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa og eldhús: Eru saman í opnu rými þar sem ljóst harð parket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suður svalir. 
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með ljósu harð parketi á gólfi og svörtum plastlögðum fataskápum. Eitt herbergið er skráð sem geymsla á teikningu en nýtist vel sem herbergi.
Baðherbergi: er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu salerni og sturtu með gleri. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara er í innréttingu.
Sér 4,9 fm geymsla er í sameign á jarðhæðinni.

- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar með svörtum höldum.
- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Innfelld led-lýsing í öllum rýmum íbúðar og Plejd snjallstýring.
- Aukin lofthæð.
- Sér bílastæði með tengi fyrir rafbíl.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á ester@kasafasteignir.is eða í síma 661-3929. 

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2023
45.950.000 kr.
59.990.000 kr.
89.1 m²
673.288 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri