Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2000
103,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Kjöreign fasteignasala kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi við Asparás 4, 210 Garðabæ. Eignin er skráð 103,5 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu með útgengi út á svalir til suð-vesturs, hol/sjónvarpshol, eldhús, þvottahús og forstofu. Sérgeymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.
Þvottahús: er innaf forstofu með góðri innréttingu. Skolvaskur er við innréttingu, flísar á gólfi og tveir opnanlegir gluggar.
Sjónvarpshol: frá forstofu er komið inná rúmgott parketlagt hol. Þar er gert ráð fyrir sjónvarpsrými/skrifstofu.
Eldhús: er með nýlegri dökkri innréttingu með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél, bakaraofn og gashelluborði. Góður borðkrókur er í eldhúsinu með fallegu útsýni. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa : eru samliggjandi og eru bjartar og rúmgóðar. Parket er á gólfi og útgengt er á góðar suðursvalir.
Hjónaherbergið: er rúmgott með fataherbergi ásamt kommóðu og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: ágætis barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: er flísalagt á veggjum og gólfi, nýleg ljós, innrétting með stórri handlaug, baðkar og sturtuklefi.
í sameign er sérgeymsla fyrir íbúðina ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Rafhleðslustöðvar og næg bílastæði fyrir íbúa fjölbýlisins.
Frá seljanda um húsið: þakið var ryðhreinsað og málað sumarið 2022,drenað 2023 og einnig hefur húsið verið sílan húðað á 5 ára fresti.
Um er að ræða vel byggt fjölbýlishús á þessum eftirsótta stað í Garðabæ. Barnvænt umhverfi. Leikskóli er í næstu götu. Stutt er í Flata- og Garðaskóla, íþróttamiðstöðina og sundlaugina í Ásgarði. Stutt yfir á Garðatorg og Litlatún þar sem ýmis þjónusta er í boði bæði verslanir og veitingarhús.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is. Vinsamlegast pantið skoðunartíma.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. nóv. 2022
54.050.000 kr.
78.500.000 kr.
103.5 m²
758.454 kr.
14. ágú. 2019
45.050.000 kr.
49.300.000 kr.
103.5 m²
476.329 kr.
5. jún. 2015
30.500.000 kr.
38.500.000 kr.
103.5 m²
371.981 kr.
27. ágú. 2010
25.150.000 kr.
25.000.000 kr.
103.5 m²
241.546 kr.
3. apr. 2008
26.700.000 kr.
30.150.000 kr.
103.5 m²
291.304 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025