Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Vista
fjölbýlishús

Gnoðarvogur 70

104 Reykjavík

79.900.000 kr.

968.485 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2023121

Fasteignamat

60.050.000 kr.

Brunabótamat

38.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
82,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 6. ágúst 2025 kl. 16:15 til 16:45

Opið hús: Gnoðarvogur 70, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 6. ágúst 2025 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Virkilega hugguleg og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Gnoðarvog 70 sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.

* Sér-bílastæði og bílskúrsréttur fylgir þessari íbúð sbr. þinglýst
yfirlýsing.
* Endurnýjað eldhús, baðherbergi, gólfefni svo fátt eitt sé nefnt
* Gott aðgengi og fallegt umhverfi
* Skjólsælar suðursvalir


Viðhald eignar sl. ár tiltelur ma. :
2025 var endurnýjaður stóri glugginn í sameign ( framhlið hússins ).
2024 var rafhleðslustöð sett í bílastæðið, endurnýjað eldhús og útbúið svefnherbergi 3.
2023 var endurnýjað þak og þakrennur, þakkantur einnig yfirfarinn og málaður.
2020 var skipt um frárennslislagnir og lagnir myndaðar.
2017 var baðherbergi endurnýjað, ofnar og ofnastýringar endurnýjað og innihurðar og sett eikarparket á gólfið.
2016 var endurnýjað rafmagn, lagnaefni og sett ný rafmagnstafla.
2015 voru endurnýjaðir gluggar & gler í íbúðinni.
2013 var húsið múrviðgert og málað að utan.
2007 voru lagnir endurnýjaðar.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

Birt stærð eignar samkv. FÍ er 82,50 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2026 er 65.950.000 kr.

Íbúðin skiptist í hol, stofu, borðstofu, svalir, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús í sameign.
Hol er með parket á gólfi og fataskápum. Falleg tvöföld, frönsk hurð.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu, opnu flæði. Parket á gólfi og fallegt útsýni. Útgengt út á skjólsælar suður-svalir.
Eldhús er með innréttingu með  innbyggðum tækjum, ísskáp með frysti, uppþvottavél, helluborði og bakarofn.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, "walk-in" sturtu, háum skáp, innréttingu með handlaug og handklæðaofni.
Sérgeymsla er í sameign með hillum.
Í sameign eru einnig tvö sameiginleg þvottahús, þar af annað einungis fyrir þessa íbúð og tvær aðrar.
Sér-bílastæði með rafhleðslustöð er við húsið og bílskúrsréttur fylgir þessari íbúð sbr. þinglýst yfirlýsing.
Vel gróinn og rúmgóður garður til suðurs. 

Lukkuleg fjölskyldueign þar sem stutt er að sækja alla þjónustu, verslun og skóla. Jafnframt stutt í fallega náttúru, útivist og íþróttir.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. okt. 2020
38.350.000 kr.
49.900.000 kr.
82.5 m²
604.848 kr.
20. ágú. 2015
22.800.000 kr.
34.000.000 kr.
82.5 m²
412.121 kr.
12. feb. 2008
17.520.000 kr.
23.250.000 kr.
82.5 m²
281.818 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík