Opið hús: Flétturimi 23, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 101. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 7. ágúst 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla. Möguleiki að gera auka svefnherbergi aftur.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Útgengi á mjög skjólgóða suður timburverönd, ca 40 fm. Veggur var tekinn niður, til að stækka stofu. Hægt að setja aftur upp og gera auka svefnherbergi, sjá upphaflegu teikningu.
Eldhús með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð og eldhúseyju.
Borðstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er stórt og bjart með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með fínni innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, opnanlegum glugga, flísar í hólf og gólf.
Þvottahús/geymsla með vaski, skápum og hillum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi og dúkur á gólfi.
Skjólgóð suður timburverönd, ca 40fm og stór sameiginlegur garður með leiktækjum.
Stæði í bílageymslu og sér merkt bílastæði á bílaplani. Hleðslustæði til staðar. Þvottaaðstaða og dekkjageymsla er í bílageymslu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi beint í sameiginlega garðinn.
Góð eign á flottum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóli og skóli í göngufæri ásamt mörgum leikvöllum.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit strax
Gott viðhald seinustu árin að innan sem utan, mjög sterkt húsfélag til staðar.
Framkvæmdir utanhúss/sameign
2016 - 2017 voru múrviðgerðir gerðar á blokkinni. Gluggar yfirfarnir og blokkin máluð að utan.
2019 - 2023 var farið í þakviðgerðir og þakskyggni fyrir ofan innganga.
2025 var stigagangurinn málaður, ásamt því að skipt var um þakplötur í anddyri.
Framkvæmdir innanhúss
2017 var eldhúsið opnað og endurnýjað með tækjum frá Ormsson.
2020 var baðherbergið endurnýjað; sett uppáhengt klósett, nýtt sturtugler, ný innrétting, handklæðaofn, ásamt því að sett var upp rennihurð til að baðherbergið myndi nýtast betur.
2021 Nýjar hurðar á alla íbúðina frá Birgisson.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.