Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2001
563,6 m²
8 herb.
5 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu eitt allra glæsilegasta einbýlishús landsins. Um er að ræða 563,6 fermetra einbýlishús með auka íbúðarrými í hluta hússins, stóru og vönduðu SPA með gufuböðum og útgengi í heitan pott og innbyggðum tvöföldum bílskúr á 1.216 fermetra glæsilegri eignarlóð á mjög skjólsælum og eftirsóttum stað á sunnanverðu Arnarnesi í Garðabæ. Húsið er teiknað af Pálmari Kristmundssyni, einum þekktasta og eftirsóttasta arkitekt þjóðarinnar, hjá PK arkitektum.
Lóðin, sem er 1.216,0 fermetra eignarlóð, er fullfrágengin og viðhaldslétt. Stór og glæsileg innkeyrsla og stéttir fyrir framan húsið með hitalögnum undir, marmarasúlur í malarbeðum, skjólsæl verönd með steyptum skjólveggjum, heitum potti, garðskála o.fl.
Skipulag eignarinnar:
Eignin skiptist m.a. í glæsliegt anddyri með mikilli lofthæð, 5 - 6 svefnherbergi, stórar og virkilega glæsilegar stofur með mjög mikilli lofthæð, gólfsíðum gluggum til suðurs og hurðum út á verönd, stórt "SPA" með baðherbergi, þrjú önnur baðherbergi, gestasnyrting, stórt þvottaherbergi, íbúðarrými með sér eldhúsi og baðherbergi, sem getur þjónað vel t.d. eldri börnum eða au-pair og stóran tvöfaldan bílskúr sem innangengt er í. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar og vandaðar og öll tæki eru af vandaðri gerð. Verulega aukin lofthæð er í stórum hluta eignarinnar.
Gróf lýsing eignar:
Komið er inn í stóra forstofu með miklum fataskápum og gríðarlega mikilli lofthæð. Hol. Innaf holi er gangur. Baðherbergi með glugga, vönduðum tækjum, flísalagðri sturtu og hornbaðkari. Afar vönduð tæki í baðherbergi. Stórt herbergi, parketlagt. Eldhús, parketlagt og með innréttingum auk glugga. Stórt herbergi, parketlagt og með snyrtingu innaf. Þvottaherbergi með glugga og miklum og vönduðum innréttingum með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, vaski og vinnuborði. Forstofa með bakinngangi og góðum fataskápum. Innangengt í bílskúr sem er tvöfaldur með epoxy á gólfi, föstum stórum skápum með rennihurðum, gluggum og rafmótor á hurð.
Úr holi er gengið niður nokkur þrep á lítinn gang með snyrtiherbergi og stórri geymslu innaf. Stórt fjölskylduherbergi, með innfelldum hátölurum og innbyggðum skápum. Spa er flísalagt með stóru sturtuherbergi (vatnsgufu og fótabaði), salerni og saunabaði. Vönduð tæki.
Á efri hæð eru glæsilegar samliggjandi stofur með glerveggjum og gler rennihurðum á milli. Fallegur gasarinn er í stofum og mjög mikil lofthæð. Eldhús er opið við stofu og með vönduðum ljósum viðarinnréttingum með náttúrugrjóti á borðum. Vönduð tæki eru í eldhúsi. Úr eldhúsi og stofum eru fjórir útgangar á verönd til suðurs og þaðan niður á aðra afgirta verönd með heitum potti og garðskála.
Á efsta palli hússins, sem skiptist í tvo hluta eru: Gangur með fataskápum eftir endilöngu, stórt hjónaherbergi, baðherbergi með glugga, stórri flísalagðri sturtu og baðkari sem er fellt niður í gólf. Vönduð tæki eru í baðherbergi. Fataherbergi (á teikningum barnaherbergi), stórt og með föstum innréttingum og skápum. Tvö stór herbergi, annað með öðru herbergi (setustofu) innaf og snyrtingu.
Vönduð gólfefni eru á húsinu, parket og náttúruflísar af vandaðri gerð. Baðherbergi eru lögð marmara og mosaikflísum. Hússtjórnarkerfi og innbyggðir hátalarar eru í loftum hússins að hluta.
Húsið að utan er í góðu ástandi.
Lóðin, sem er 1.216,0 fermetra eignarlóð, er afar glæsileg með stórri innkeyrslu með hellum og hitalögnum undir, steyptum veggjum, möl í beðum o.fl. Lóðin er nánast viðhaldsfrí.
Eignin er skráð skv. Fasteignaskrá Íslands 460,4 fermetrar en er í raun 563,6 fermetrar að stærð skv fyrirliggjandi samþykktri og stimplaðri skráningartöflu vegna eignarinnar.
Hér er hlekkur á umfjöllun um húsið af heimasíðu arkitektsins: https://pk.is/projects/b20
Allar nánari upplýsingar um eignina og tímapantanir fyrir skoðun veitir Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali, í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is Athugið að eignin verður eingöngu sýnd í einkasýningum.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. apr. 2017
129.050.000 kr.
235.000.000 kr.
460.4 m²
510.426 kr.
19. feb. 2014
121.900.000 kr.
152.500.000 kr.
460.4 m²
331.234 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025