Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1961
94,2 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Nýtt á skrá! Álfheimar 70 Reykjavík - Bókið skoðun!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 94,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með svölum til suðvesturs við Álfheima 70 í Reykjavík. Sérgeymsla er 5,2 fermetra og er staðsett í kjallara. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum 5-7 árum, má þar nefna eldhús, baðherbergi, gólfefni og innihurðir. Útgengi úr stofu á sólríkar svalir til suðvesturs sem snúa inn í bakgarð hússins. Aðstaða fyrir þvottavél er inn af baðherbergi en auk þess er rúmgott þvottaherbergi í kjallara ásamt tveimur hjóla- og vagnageymslum.
Lóðin er gróin og falleg. Tyrfður bakgarður til suðurs og hellulögð bílastæði vestan og norðan megin við húsið. Búið er að setja upp fjórar hleðslustöðvar við sameiginleg stæði á lóðinni. Þá er snjóbræðsla undir stétt og útitröppum fyrir framan húsið.
Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Álfheima í Reykjavík. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.
Gæludýr eru leyfileg í húsinu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðvesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan á sjarmerandi máta. Falleg eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa. Gorenje bakaraofn, spansuðu helluborð og háfur. Innb. uppþvottavél, gluggi til suðvesturs og borðkrókur.
Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Flísar á gólfum og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Góð innrétting fyrir þvottavél með skápaplássi. Gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 5,2 fermetrar að stærð.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara (einnig tengi fyrir þvottavél/þurrkara innan íbúðar). Sér tenglar fyrir hverja íbúð, gluggi til suðvesturs og þvottasnúrur ásamt vinnuborði með vask.
Hjóla- og vagnageymslur: Eru tvær og eru staðsettar í kjallara. Útgengi úr stærri hjólageymslu á baklóð hússins.
Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. des. 2018
39.900.000 kr.
35.000.000 kr.
94.2 m²
371.550 kr.
19. mar. 2008
19.110.000 kr.
24.400.000 kr.
94.2 m²
259.023 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025