Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
svg

337

svg

279  Skoðendur

svg

Skráð  13. okt. 2025

fjölbýlishús

Suðurhólar 30

111 Reykjavík

51.900.000 kr.

608.441 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2050970

Fasteignamat

51.500.000 kr.

Brunabótamat

40.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
85,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna til sölu vel staðsetta rúmgóða 85,3 fm. 2ja. herbergja íbúð merkt 203 með sér inngangi á 2.hæð við Suðurhóla 30, 111 Reykjavík. 
- Allt að mestu upprunalegt innan íbúðar – frábært tækifæri til endurbóta og persónulegrar útfærslu,
- Geymsla er innan íbúðar sem nýtist vel til daglegra nota.
- Búið að loka svölum og breyta í opna sólstofu sem er ekki inn í birtum fermetrum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

 
Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er í forstofu með fatahengi og gráleitum flísum á gólfi.
Stofa: Björt og opin með stórum gluggum. Búið er að loka svölum og breyta í opna sólstofu sem er ekki inn í birtum fermetrum og ekki samþykkt breyting. Teikning er því ekki í samræmi við núverandi skipulag. Er nýtt í dag sem skrifstofurými. 
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og kork á gólfi.
Svefnherbergi: Er með rúmgóðum fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi: Á baðherbergi er sturta, ljós innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gráleitar flísar á gólfi og vegg í sturtu.
Geymsla: Er inn af forstofu með hillum og glugga.
Sameign: Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. 

Eignin er mjög vel staðsett þar sem örstutt er í leik-, grunn-, og framhaldsskóla. Einnig er verslun og öll helsta þjónusta innan seilingar.

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone