Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Lomas De Cabo Roig

953 Spánn - Costa Blanca

24.900.000 kr.

276.667 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008201

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
90 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR NÝTT Í SÖLU: *NÝ ENDAÍBÚÐ MEÐ SUÐURSVÖLUM OG ÚTSÝNI TIL SJÁVAR OG YVIR SUNDLAUGARGARÐINN* *LYFTUHÚS OG HÆGT AÐ KAUPA STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *SUNDLAUG OG GRÆN SVÆÐI* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI, 2KM Á STRÖND* *EINNIG Í BOÐI AÐ KAUPA ÍBÚÐIR Á JARÐHÆÐ MEÐ STÓRUM GARÐI EÐA PENTHOUSE MEÐ ÞAKSVÖLUM*

Vönduð endaíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsnæði, 18 fm svalir með útsýni til sjávar og yfir sundlaugargarðinn. Stór sérafnotaréttur af sameign fyrir framan eignina, forstofa, eldhús og stofa tengjast vel. Ný eldhústæki innifalin í verði. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað þeirra með sjávarútsýni. Tvö baðherbergi. 
Til afhendingar í Maí 2026. 
Þessar eignir eru á frábæru verði og nýr áfangi var að koma í sölu.

Íbúðirnar eru staðsettar á frábærum stað í hinu vinsæla Lomas de Cabo Roig hverfi, örstutt frá góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2km fjarlægð frá strönd og 20-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast íbúð á góðu verði í frábæru umhverfi. Frábær fjárfesting, til útleigu og til að eyða frídögunum, eða til að búa í allt árið.

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869 , berta@spanareignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 00354 8932495, adalheidur@spanareignir.is


Einnig eru aðrar eignir í boði í húsinu:
Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, anddyri, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæðum með svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og þaksvölum. Fallegar innréttingar. Góð sameign með sundlaug, fallegum opnum grænum svæðum og leikvelli fyrir börn. Gott sérafnotarými fyrir framan allar íbúðirnar.
MÖGULEIKI Á AÐ KAUPA  STÆÐI Í BÍLAKJALLARA. VERÐ FYRIR STÆÐI FRÁ 8.000 EVRUR + KOSTN.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast rúmgóða og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Góðir skólar í næsta nágrenni, bæði spænskir og alþjóðlegir einkaskólar. Góð heilsugæsla í næsta nágrenni.
Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente.  Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. 
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, suðursvalir, stæði í bílakjallara,
Svæði: Costa Blanca, Lomas de Cabo Roig, Cabo roig

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.