Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
svg

515

svg

343  Skoðendur

svg

Skráð  30. okt. 2025

fjölbýlishús

Rofabær 47

110 Reykjavík

62.900.000 kr.

762.424 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2045286

Fasteignamat

52.350.000 kr.

Brunabótamat

42.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
82,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. nóvember 2025 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Rofabær 47, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 02 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 4. nóvember 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna:  Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð efst í Rofabæ. Eignin sem er 82,5 fm að stærð skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og 4,6 fm geymslu í sameign. Húsið sem er teiknað af Kjartani Sveinssyni hefur verið endurnýjað mikið á undanförnum árum. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Bókið skoðun hjá Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is
Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninni


NÁNARI LÝSING:
Forstofa/gangur:
Komið er inn í forstofu/gang með stórum innbyggðum fataskáp. Ljóst harðparket á gólfi.
Eldhús: Falleg grámáluð innrétting með ljósgráum borðplötum, hvítar flísar milli efri og neðri skápa. Stállitaður bakaraofn, span helluborð og vifta. Borðkrókur. Ljósar flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt með útgengi á suðursvalir. Ljóst harðparket á gólfi.  
Hjónaherbergi: Fataskápar með rennihurðum. Ljóst harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi #2: Fataskápur, ljóst harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Baðkar, wc, hvít innrétting með innfelldri handlaug. Grár korkur á gólfi og hvítar flísar upp á miðja veggi. 
Geymsla: 4,6 fm sérgeymsla i sameign. 
Sameign: á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði á sameiginlegu bílaplani.

Endurbætur á húsinu síðastliðin ár:
2017 - Þak tekið í gegn og járn endurnýjað ásamt þakrennum. Farið var í sprunguviðgerðir á norður- og vesturhlið hússins og flötur málaður. Skipt um glugga og gler á austur- suðurhlið (fyrir utan svalaglugga og gler ásamt svalahurðum). Gluggar lagaðir og málaðir á vestur- og norðurhlið hússins.
Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
2018 - Sameiginlegt leik og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.
2022 - Leiktæki á sameiginlegri lóð endurnýjuð.
2023 og 2025 - Suðurhlið hússins var klædd og skipt um glugga og svalahurðir. Svalir endursteyptar og sett handrið með álprófílum og hertu gleri. Múrviðgerðir á steypta hlutanum inn í svölunum. Múr lagaður og suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum. Svalahurðir endurnýjaðar ásamt stofuglugga sem eru inni á svölunum

Vinsæl og afar fjölskylduvæn staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem í leik- og grunnskóla, matvöruverslun, blómlegt íþróttastarf Fylkis og Árbæjarsundlaug. Útivistarperlurnar Elliðaárdalur og Víðidalur eru í göngufjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone