Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
77 m²
3 herb.
2 svefnh.
Útsýni
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Smárahlíð 4 - 301 (E)
Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð með góðu útsýni. Eignin er samtals 77 fm., sérgeymsla í sameign auk sameiginlegs vagna- og hjólageymslu á jarðhæð.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og tvær geymslur, önnur innan íbúðar og hin á jarðhæð.
Forstofa er með parketi á gólfi og inn af henni er geymsla.
Hol er með parketi á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar.
Eldhús er með parket á gólfi, upprunalegri innréttingu með stæði fyrir 45 cm uppþvottavél og flísar milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum í sturtu, salerni, sturtuklefa, ljósri upprunalegri innréttingu og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi eru tvö bæði með plastparketi á gólfi og annað þeirra með góðum fataskáp.
Stofa er með plastparketi á gólfi og þaðan er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs með góðu útsýni.
Annað:
-Vel staðsett eign, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og Sunnuhlíð þar sem Heilsugæslan er meðal annars til húsa
-Í sameign er hjóla- og vagnageymsla sem og þurrkherbergi
-Ljósleiðari tengdur
-Vart var við leka úr þvottavél á baðherbergi og sér á vegg og sökkli innréttingar að sögn smiðs
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. nóv. 2024
36.300.000 kr.
40.000.000 kr.
20301 m²
1.970 kr.
20. des. 2017
15.000.000 kr.
21.500.000 kr.
77 m²
279.221 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025