Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
atvinnuhúsnæði

Múlavegur 18

625 Ólafsfjörður

65.000.000 kr.

108.333 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2153909

Fasteignamat

43.800.000 kr.

Brunabótamat

147.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
600 m²
svg
0 herb.
svg
2 baðherb.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Múlavegur 18 - Vel staðsett atvinnuhúsnæði með góðri aðkomu á Ólafsfirði - stærð 600 m²
Lóðin er leigulóð í eigu Fjallabyggðar og 2.612,5 m² að stærð. 


Húsið er skráð steypt og með byggingarár 1979

Húsið skiptist í afgreiðslu/sýningarsal, kaffistofu, snyrtingar, ræstikompu, starfsmannaðstöðu, sal og verkstæði. Geymsluloft er yfir hluta. 

Húsið var mikið endurnýjað að innan á árunum 2012-2013 þegar núverandi eigandi hóf starfsemi í húsinu. 

Afgreiðsla / sýningarsalur er í vestur enda hússins. Þar eru stórir gluggar til tveggja átta og steinteppi á gólfum. 
Kaffistofan er rúmgóð, með steinteppi á gólfi og ljósri innréttingu. 
Rúmgóður salur/verkstæði er fyrir miðju í húsinu þar sem loft eru tekin upp og ljóst epoxy efni á gólfum. Tvær stórar rafdrifnar innkeyrsluhurðar eru á framhlið hússins og ein gönguhurð á bakhliðinni. 
Inn af salnum er starfsmannaaðstaða og snyrting með epoxy efni á gólfum 
Við endann á salnum er verkstæði, um 1 sperrubil á breidd og með epoxy efni á gólfum. Yfir þessum hluta er steypt geymsluloft. 

Annað
- Geymsluloft eru yfir rýmum í báðum endum húsnæðisins. Fermetrar á lofti eru óskráðir í heildarstærð eignar.
- Hitablásarar eru í salnum en ofnar í öðrum rýmum. 
- Á árunum 2012-2013 voru hita- og raflagnir mikið endurnýjaðar, sett ný gólfefni, ný lýsing o.fl.
- Rúmgott steypt bílaplan. 
- Þak hefur lekið.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. jún. 2012
16.880.000 kr.
15.000.000 kr.
600 m²
25.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone