Lýsing
*** Eignin er SELD. Er með áhugasama kaupendur að sambærilegri eign í hverfinu ***
Nánari upplýsingar
Forstofa: rúmgóð með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi I: bjart og gott herbergi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: endurnýjað 2021. Flísalagt gólf og veggur. Steyptur sturtubotn með glervegg. Nett hvít skúffuinnrétting undir handlaug ásamt góðu skápaplássi til hliðar. Upphengt salerni. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Góð viðarinnrétting með eyju. Stæði fyrir uppþvottavél. Gott skápapláss. Háfur yfir spanhelluborði. Gólf í eldhúsi er flísalagt.
Stofa/borðstofa: er í opnu rými með eldhúsi. Útgengt úr borðstofu á góðar suður svalir. Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi.
Viðhald og endurbætur:
2024 Uppsetning á sameigninlegri hleðslustöð ásamt viðgerð á bílaplani og einu bílastæði bætt við.
2022-2023 Skipt um 2 glugga og 3 opnanleg fög í íbúð.
2022 Helluborð og ofn í eldhúsi endurnýjuð og sett Siemens tæki.
2021-2022 Múrvinna og húsið málað.
2021 Baðherbergi alveg endurnýjað. Skilveggir teknir niður, vatnslögn endurnýjuð að þvottavél. Nýtt upphengt salerni með innbyggðum wc kassa. steypt upp ný sturta frá grunni. Glerveggur við sturtu. Baðherbergið flísalagt með hágæða flísum frá Vídd bæði gólf og veggir.
2019 Eldvarnarhurð í íbúð. Rafmagn fyrir ljós í aðalrými yfirfarið og nettenging þrædd yfir í skrifstofuherbergi.
2018 Þak málað.
Húsið er hið snyrtilegasta og sameign fín. Þar er hjóla og vagnageymsla ásamt sér geymslu íbúðar. Garðurinn sem snýr í suður er gróinn og með fallegum trjágróðri. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Húsið er 4 hæða fjölbýlishús byggt 1996 staðsett mjög miðsvæðis. Stutt í verslanir og þjónustu. Fallegt útivistarsvæði og íþróttaaðstaða í göngufæri. Bæði grunnskóli og leikskólar í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.