Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1996
87,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 18. nóvember 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Lautasmári 16, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 18. nóvember 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg og mikið endurnýjuð 87,1 fm íbúð á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Lautasmára 16. Suður svalir. Vandaður frágangur.Nánar um íbúð: Íbúð 02-0302 í Lautasmára 16, er þriggja herbergja 81,1 fm. íbúð á 3.hæð með sér geymslu sem telur 6 fm, samtals 87,1 fm.
Fasteignamat 2026 er 67.950.000 kr.
Allar upplýsingar gefur Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, magnus@eignamidlun.is
*** Smelltu hér til að sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvíta innréttingu, mikið skápa- og borðpláss. Vönduð eldhústæki frá Bosch, bakaraofn og helluborð. Innbyggður ísskápur og frystir ásamt innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, opin og björt með stórum gluggum. Parket á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar suður svalir.
Barnaherbergi (8,9 fm) er með fataskáp. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi (12,3 fm) er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu. Walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Grohe. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla (6 fm) er í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins.
Anddyri í sameign flísalögð 2025, stigagangur málaður 2024 og gluggar málaðir að utan 2019.
Eignin er mjög mikið endurnýjuð og rúmgóð. Snyrtileg fjölskylduíbúð á frábærum stað í Smárahverfi í Kópavogi.
Leikskólinn Lækur er í göngufæri og ásamt því er stutt í Smáraskóla, Sporthúsið og íþróttaaðstöðu Breiðabliks við Smárann.
Stutt er í alla helstu þjónustu en Smáratorg og Smáralind eru í göngufæri ásamt því að stutt er í Kópavogsdalinn í gönguleiðir.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. júl. 2015
24.850.000 kr.
31.500.000 kr.
87.1 m²
361.653 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025