Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
53,1 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Hjólastólaaðgengi
Lyfta
Laus strax
Opið hús: 4. desember 2025
kl. 13:00
til 13:30
Opið hús: Elliðabraut 22, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 06 02 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 4. desember 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð og glæsileg nýleg 2.herbergja 56,3 m2 íbúð á 2.hæð (0203) í lyftublokk við Elliðabraut 22 með svalalokun og mjög fallegu útsýni yfir Elliðavatn. Um er að ræða endahús í götunni sem liggur að skólendi. Húsið va byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhóla, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Sameign er rúmgóð og björt. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Hér fyrir söluyfirlitNánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing eignar
Forstofa með harðparket á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi með harðparket á gólfi, rúmgóður fataskápur sem nær til lofts.
Baðherbergi með fallegri baðinnrétting með efri og neðri skáp, hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Walk in sturta. Þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi fylgja með.
Eldhús/borðstofa með harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson. Innbyggð uppþvottavél og nýlegur Samsung ísskápur fylgir með.
Stofa með harðparketi á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar svalir, gólfsíðir gluggar að hluta. Svalalokun og stórbrotið útsýni yfir Elliðavatn.
Geymsla er í kjallara er 7 m2.
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftsjiptikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun.
Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. jún. 2024
45.950.000 kr.
6.760.000 kr.
60203 m²
112 kr.
7. maí. 2021
2.580.000 kr.
41.911.000 kr.
53.1 m²
789.284 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025