Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
svg

76

svg

67  Skoðendur

svg

Skráð  2. des. 2025

fjölbýlishús

Öldutún 12

220 Hafnarfjörður

58.900.000 kr.

694.575 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2080943

Fasteignamat

47.100.000 kr.

Brunabótamat

34.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1969
svg
84,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. desember 2025 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: fimmtudaginn 4. desember kl. 17:15 og kl. 17:45 - Öldutún 12, 220 Hafnarfjörður.

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á þessum vinsæla og barnvæna stað í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð samkvæmt HMS samtals 77,40 fermetrar, þar af geymsla 4,6 fm. Margt bendir til þess að 7,40 svalir sem búið er að byggja yfir og eru nú hluti af íbúðinni séu ekki inni í skráðum fermetrum. Skv. því er eignin 84,80 fermetrar. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Gott rými þar sem hægt er að setja fataskáp
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt með nýju harðparketi og nýlegum ofnum. Stofan hefur verið stækkuð á kostnað svala sem gerir rýmið einstaklega stórt og bjart. Gólfhiti í stækkuninni.
Eldhús: Flísar á gólfi. Snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Flísar milli efri og neðri skápa. Borðkrókur við glugga. Opið inn í stofu sem skapar góða tengingu á milli rýma.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hiti í gólfi, vegghengt salerni og innrétting við vask. Baðkar með sturtu, handklæðaofn og flísar á gólfi. 
Sameign: Þvottahús í sameign. Þá fylgir íbúðinni sérgeymsla í kjallara sem skráð er 4,5 fm, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Endurbætur samkvæmt seljanda:
- Skipt um skolplagnir út í brunn
- Endurnýjað járn á þaki
- Gluggar endurnýjaðir í hluta íbúðar

Staðsetning:
Íbúðin er staðsett á rólegum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Góð tenging við stofnbrautir og stutt í útivistarsvæði og almenningssamgöngur.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski –
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / 450-0000

Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður