Upplýsingar
Byggt 1971
59,8 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Víðilundur 6 - 302
Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í fjölbýli á mjög vinsælum stað á efri brekku. Eignin er samtals 59,8 fm. en þar af er sér geymsla í sameign 5,5 fm..
Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi ásamt svölum sem snúa til vesturs.
Andyri og hol er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa er okkuð rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á svalir til vesturs.
Eldhús er með parket á gólfum, upprunalegri innréttingu með stæði fyrir 45 cm uppþvottavél sem fylgir og ísskáp sem getur einnig fylgt. Úr eldhúsi er glæsilegt útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með nýlegar gráar flísar á gólfum og upp á baðkar sem er með sturtutækjum. Dúkur á veggjum og aðstaða fyrir þvottavél. Möguleiki er að koma fyrir handklæðaofni á baðherbergi en fyrir er hefðbundinn ofn.
Annað:
-Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð
-Frábær fyrstu kaup
-Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
-Snyrtileg sameign, stigagangur nýlega málaður og skipt um teppi
-Skipt um handrið á svölum
-Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar og nýjar stéttar með hitalögnum steyptar framan við húsið
-Hjóla- og vagnageymsla í sameign
-Frábær staðsetning, stutt í grunnskóla, KA svæðið, ásamt verslun og þjónustu
-Móða milli glerja
-Fyrirhugað er að endurnýja þak og er gróflega áætlaður kostnaður á íbúðina um 1 mkr.
-Búið er að múrviðgera blokkina og áætlað að mála næsta sumar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955