Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
fjölbýlishús

Hjallabraut 43

220 Hafnarfjörður

76.900.000 kr.

708.756 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075642

Fasteignamat

68.850.000 kr.

Brunabótamat

52.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1972
svg
108,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 4. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:00

OPIÐ HÚS miðvikudaginn 4. febrúar frá kl. 16.30 - 17.00 við Hjallabraut 43, íbúð 201 í Hafnarfirði, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á svala@as.is.

Lýsing

Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á  2. hæð við Hjallabraut 43 í Hafnarfirði.
Eignin er skráð 108,5 fm en einnig er á sérgeymsla í kjallara sem er 4,4 fm sem eru óskráðir fm.


Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með parketi á gólfi og stórum glugga sem hleypir inn góðri birtu.
Eldhús afar smekklegt og nýlega endurnýjað með fallegri grárri innréttingu með viðarplötu, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Spanhelluborð og bökunarofn
Bjartur og góður gluggi í enda eldhúss sem vísar í suðvestur.
Stofa er rúmgóð og björt með útgengt út á góðar suðvestur svalir með viðarþiljur á gólfi.
Þvottahús og geymsla eru innaf eldhúsi.
Þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi og flísar á gólfi.
Geymsla með góðum hillum og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum of parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi afar smekklegt með gráum flísum á gólfi og hluta veggja. Sturtubaðkar, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Góðir skápar eru á svefnherbergisgangi.
Sérgeymsla er í kjallara ( 4,4 fm ) ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.
Bílastæði eru sameiginleg og búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.
Gott húsfélag og virkt samstarf.
Sameiginlegur garður með leikvelli, einnig á húsfélagið trampólín sem sett er upp yfir sumarið.
Húsið og sameign hin allra snyrtilegasta og nýlega búnar framkvæmdir á ytra byrði hússins Hjallabraut 35-43 fyrir um 180 milljónir.
 
Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:
2024 Eldhús endurnýjað.
2024 Baðherbergi endurnýjað ásamt lögnum.
2024 Nýtt og vandað parket frá Birgisson.
2024 Loft og veggir slípað, heilsparslað og málað.
2023 Húsið múrviðgert og málað.
2023 Svalagólf málað með epoxy og klætt með viðarþiljum.
2016 Gler og gluggar endurnýjaðir að mestu.
2016 Klæðning endurnýjuð utanhúss. 
2013 Þak endurnýjað.  

Falleg og mikið endurnýjuð eign á þessum vinsæla stað í Norðurbænum í Hafnarfirði þar sem stutt er alla helstu þjónustu og tengibraut. 
Margar fallegar gönguleiðir í nágrenninu og einnig er miðbær Hafnarfjarðar í göngufæri með alla þá þjónustu, veitingastað og kaffihús sem hann hefur uppá að bjóða.


Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jún. 2025
64.800.000 kr.
73.500.000 kr.
50201 m²
1.464 kr.
17. okt. 2023
57.950.000 kr.
67.000.000 kr.
108.5 m²
617.512 kr.
2. apr. 2014
21.200.000 kr.
26.500.000 kr.
108.5 m²
244.240 kr.
20. feb. 2007
17.500.000 kr.
21.500.000 kr.
108.5 m²
198.157 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone