Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Grandavegur 47

107 Reykjavík

61.900.000 kr.

833.109 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2024811

Fasteignamat

64.350.000 kr.

Brunabótamat

35.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
74,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 2. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Grandavegur 47, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 08 04 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 2. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi, byggðu árið 1989, fyrir +60 ára að Grandavegi 47 í 107 Reykjavík. Íbúðin er skráð 65,8 m² að stærð en til viðbótar er c.a. 8,5 m2 sérgeymsla sem er ekki meðtalin í birtri stærð, og skiptist í anddyri, baðherbergi, eldhús, þvottahús, hol, svefnherbergi og stofu þaðan sem útgengt er á sér svalir íbúðar. Þá tilheyrir eign aðgangur veislusal á efstu hæð húseignar og á jarhæð er saunaklefi, heitur pottur og sturtur fyrir íbúa. Frábær eign fyrir +60 ára í 107 Reykjavík þar sem öll þjónusta er við hendi og stutt í fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur, lgfs., brynjolfur@heimili.is. 

Nánari lýsing.

Anddyri: Parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur. Frá anddyri liggur gangur að öðrum vistarverum íbúðarinnar.
Borð- og setustofa: Í opnu rými, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu, þar af annar gólfsíður, og útgengi á sér svalir eignar.
Eldhús: Endurnýjuð innrétting (2019), gott skápapláss, flísar á milli borðplötu og efri skápa, ágæt vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, borðkrókur og gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús/búr: Inn af eldhúsi, vaskur, hillur, tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir þurrkara. Á gólfi er dúkur og innan rýmis er opnanlegt fag.
Herbergi: Rúmgott með þreföldum fataskápum. Á gólfi er parket og innan herbergis er stór gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2019. Falleg innrétting með speglaskáp yfir handlaug og skáp þar undir, handklæðaofn, vegghengt wc, sturtuklefi og skápur þar við hlið. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Geymsla: Rúmgóð geymsla í kjallara húseignar sem er ekki í birtri stærð eignar. 
Sameign:  Eigninni fylgir snyrtileg sameign þar sem eru tvær lyftur, sauna, heitur pottur og sturtur á jarðhæð og veislusalur á efstu hæð. 
Í húsinu er einnig starfandi húsvörður.

Árið 2019 var eldhús og baðherbergi íbúðar endurnýjað auk gólfefna að frátöldu gólfefni í þvottahúsi. 

Falleg eign í vinsælu lyftuhúsi í Vesturbænum þar sem stutt er í alla almenna þjónustu og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. des. 2018
37.150.000 kr.
36.500.000 kr.
65.8 m²
554.711 kr.
7. des. 2007
13.955.000 kr.
23.500.000 kr.
65.8 m²
357.143 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík