Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, stofu, laufskála, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu í kjallara. Svalalokun er á rúmgóðum svölum sem snúa í vestur. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 95,5 m2.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn um stigahús með lyftu og þaðan út þar sem er sérinngangur af svölum. Viðarfataskápar og ljósar flísar á gólfi.
Stofa og laufskáli eru björt rými með útgengi á vestursvalir með svalalokun og útsýni til vesturs. Parket er á gólfum.
Eldhús er með hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með hvítri viðarinnréttingu, sturtuklefa, salerni með stuðningsgrind á vegg, aðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Hvítar flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með viðarfataskápum.
Geymsla er sér á jarðhæð, hún er 5,9 m2 og ekki inni í uppgefnum fermetrafjölda íbúðar.
Bílastæði í læstri bílageymslu er á jarðhæð. Þvottaaðstaða. Mögulegt að útbúa rafhleðslustöð.
Samkomusalur er í húsinu og er til afnota fyrir íbúa gegn vægu gjaldi.
Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson lgf. í síma 698-1164 eða dr@gimli.is
Hér er frábært tækifæri til að búa á besta stað í Garðabæ í fallegu fjölbýli þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í göngufæri.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...