Opið hús: HRAUNBRAUT 43 , 805 Selfoss. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Húsið stendur innst við botnlanga ofarlega í bænum í útjaðri, Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu.
Í göngufæri er meðal annars, sundlaug, leikskóli og grunnskóli. Smellið hér fyrir staðsetningu. Sjá hér upplýsingar Borg í sveit!
Húsið er timburhús á einni hæð, byggt árið 2023. Húsið skiptist í íbúð 138.2 m² og bílskúr 62.2 m², samtals 200.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónasvíta með baðherbergi, tvö herbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús og bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471-2858 |
Nánari lýsing:
Anddyri, þrefaldur fataskápur, frá anddyri er innangengt í þvottahús og þaðan í bílskúr.
Gangur er inn af anddyri að öðrum rýmum eignarinnar.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þaðan er útgengt út á timburverönd u.þ.b.130 m² með skjólveggjum (vegghengdur skápur í stofu fylgir).
Eldhús, L-laga innrétting og eyja, helluborð í eyju, ofn og ofn/örbygljuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, búrskápur,
gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Herbergi I, hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur, baðherbergi inn af.
Baðherbergi I inn af hjónaherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni, baðkar, gluggi.
Herbergi II, fjórfaldur fataskápur.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi II, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og sturta, handklæðaofn og gluggi, útgengt út á verönd.
Þvottahús, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vaskur í innréttingu, rafmagnstafla, gluggi, innangengt í bílskúr.
Bílskúr, Epoxy á gólfi, tvær hurðar með rafrænni opnun, inntak og gólfhitagrind, gönguhurð er á bílskúr á móts við inngang hússins, innangengt í þvottahús.
Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og herbergjum. Flísar eru á anddyri, baðherbergjum og þvottahúsi
Húsið er upphitað með gólfhitalögn sem er steypt í gólfplötu, Danfoss stýringar á veggjum.
Innbyggð lýsing er í alrými og gangi, dimmerar eru í öllum rýmum.
Hljóðdúkur frá Enso er í öllum rýmum nema bílskúr. Innihurðar með fellilistum frá Birgisson.
Stýringar eru til staðar í hitagrind fyrir heitan pott og hita í plani.
Hraunbraut 43 er timburhús á einni hæð, klætt að utan með liggjandi bárujárni. Aluzink á þaki. Ál/timbur gluggar og hurðar.
Timburverönd u.þ.b.130 m² með skjólveggjum er framan við húsið til suðurs og vesturs meðfram hlið hússins.
Möl er í bílaplani pláss fyrir átta bifreiðar. Náttúrulegur gróður og hleðsla er aftan við húsið.
Lóðin er 1136.3 m² leigulóð í eigu Grímsnes-og Grafningshrepps
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 252-1398. Hraunbraut 43, Grímsnes-og Grafningshreppur.
Stærð: Einbýli 138.2 m². Bílskúr 62.2 m² Samtals 200.4 m².
Brunabótamat: 114.850.000 kr.
Fasteignamat: 85.750.000 kr.
Byggingarár: 2023.
Byggingarefni: Timbur.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala