Opið hús: Veghús 23, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Dagrúnu Davíðsdóttir löggiltum fasteignasala í síma 866-1763 eða á dagrun@betristofan.is
Nánari lýsing:
Inngangur/hol: Komið inn á gang með flísum.
Þvottahús: Mjög rúmgott, nýtt bæði sem geymsla og þvottahús. Innaf ganginum. Flísar á gólfi
Svefnherbergi: Bjart herbergi með flottu útsýni. Parketlagt gólf.
Svefnherbergi: Bjart herbergi með flottu útsýni, fataskápur, parketlagt gólf.
Hjónaherbergi: Bjart herbergi með flottu útsýni, fataskápur, parketlagt gólf.
Stofa/borðstofa: Stórt rými sem er opið með eldhúsi, gengið út á stórar suðursvalir. Parketlagt gólf.
Eldhús: Opið með stofu, hvít innrétting með bakaraofn og eldavél. Flísalagt gólf.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu hengi, salerni, innrétting með stórri handlaug með tveimur blöndunartækjum.
Þvottahús: Innaf ganginum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: 26 fermetrar
Mjög góð staðsetning í Grafarvogi þar sem örstutt er í alla skóla, stutt í verslanir og þjónustu í Spönginni, Grafarholti, Bauhaus og fl., stutt í sundlaug Grafarvogs og íþróttamiðstöðina við Dalhús, stutt í Egilshöllina (íþróttir, veitingar, skautasvell, bíó og fl. Stutt (3 mín) á GR golfvelli (Korpúlfsstaðir-Grafarholt), Stutt út úr Borginni í heillandi náttúru, göngu og fjallgönguleiðir.
Nánari upplýsingar veita Hlynur Bjarnason löggiltur fasteignasali í síma 697 9215 / hlynur@betristofan.is og Dagrún Davíðsdóttir í síma 866-1763 eða á dagrun@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.