Lýsing
Virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 86,3 fm. íbúð á 3. hæð (efstu hæð) Sérinngangur af svölum. Frábært útsýni og afar stutt í alla þjónustu og skóla, allt í göngufæri.
2 svefnherbergi og rúmgóð stofa, útgengt á stórar suðursvalir. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Anddyri: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum skáp. Innaf forstofu er geymsla.
Stofa / borðstofa: Eru saman í opnu og björtu rými með nýlegu harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á góðar og sólríkar suður svalir.
Eldhús: Eldhúsinnréttingin er hvít og snyrtileg með flísum á milli skápa. Flísar á gólfi og góður borðkrókur með fallegu útsýni. Tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góð skápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Með skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með vaskaskáp, baðkari með sturtu, flísum á gólfi og vegg að hluta og tengi fyrir þvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi.
Gólfefni íbúðar: Harðparket og flísar.
Sér geymsla: Er í sameign á jarðhæð og er skráð 3 fm.
Hjólageymsla: Er í sameign á jarðhæð.
Bílastæði: Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat